Viðskipti innlent

Raquelita Rós ráðin tækni­stjóri

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Raquelita Rós Aguilar er nýr tæknistjóri Itera á Íslandi.
Raquelita Rós Aguilar er nýr tæknistjóri Itera á Íslandi. Silla Páls

Raquelita Rós Aguiler hefur verið ráðin í stöðu tæknistjóra hjá Itera á Íslandi. 

Raquelita hefur víðtæka reynslu og sérfræðiþekkingu á sviði upplýsingatækni, nýsköpunar og stafrænnar umbreytingar. Hún er menntaður tölvunarfræðingur og hefur áður starfað í tæknistörfum og sem stjórnandi. 

Raquelita kemur til með að leiða tæknilega stefnumótun Itera og styðja við áframhaldandi vöxt fyrirtækisins.

„Það er okkur sönn ánægja að fá Raquelitu til liðs við Itera. Hún bætist við öflugt teymi Itera sem hefur þegar náð frábærum árangri, og við erum sannfærð um að hennar innsýn og leiðtogahæfileikar muni efla starfsemi okkar enn frekar,“ er haft eftir Snæbirni Inga Ingólfssyni, framkvæmdastjóri Itera á Íslandi, í tilkynningu frá félaginu.

Itera hefur verið starfandi á Íslandi frá árinu 2016 en fyrirtækið aðstoðar viðskiptavini sína við þróun hugbúnaðarlausna. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×