Staðreyndir um Þristinn Gunnfaxa Tómas Dagur Helgason skrifar 18. júní 2025 10:01 Kristjan Már Unnarsson, fréttamaður skrifaði grein á visi.is sunnudaginn 15. júní sl. um meinta ólgu meðal félaga í DC 3 Þristavinafélaginu vegna sölu á flugvélaskrokks TF-ISB. Þar sem okkur í stjórn félagsins var ekki boðið að tjá okkur um efni greinarinnar áður en hún var birt, þá viljum við leggja áherslu á eftirfarandi staðreyndir: Þristavinafélagið var stofnað 3. mars 2005. Markmið félagsins eins og segir í samþykktum þess var“… að veita fjárhagslegan stuðning til rekstrar og viðhalds DC-3 flugvéla þ.e. TF-NPK og TF-ISB í eigu Landgræðslunnar. Ennfremur að fljúga TF-NPK. Stuðla að endurbyggingu TF-ISB og að auka áhuga og skilning á mikilvægi þessarar flugvélategundar, flugsögu og þróun íslenskra og alþjóðlegra flugmála“. Aðal áherslan var strax lögð á að tryggja rekstur TF-NPK, það er DC 3 flugvélarinnar Páls Sveinssonar og halda henni á lofti eins og kostur var. Það reyndist ærið verkefni en með stuðningi Icelandair og fleiri aðila tókst að láta hana fljúga eitthvað allt til ársins 2019. Flugsafn Íslands hefur um árabil veitt félaginu ómetanlega aðstoð með samningi um varðveislu vélarinnar á safninu á Akureyri þannig að almenningur hafi góðan aðgang að vélinni. Stjórnin hefur á aðalfundum félagsins leitað eftir tillögum félagsmanna hvernig við gætum varðveitt TF-ISB og sögu þeirrar flugvélar eins og hún á sannarlega skilið. Ljóst er að varsla svona gamalla flugvéla, svo vel fari, er óheyrilega kostnaðarsöm. Þristavinafélagið hefur ekki yfir húsnæði að ráða sem hýst getur DC 3 vélar og var félagið alltaf í miklum vandræðum með hvernig við gætum fundið fyrir hana skjól fyrir veðri og vindum. Isavia hefur hýst vélina fyrir okkur frá árinu 2007, en nú á að rífa það húsnæði og ekki í nein húsaskjól að venda í Keflavík eða annars staðar. Engar raunhæfar tillögur hafa komið frá félagsmönnum um lausnir varðandi varðveislu hennar til dæmis með því að gera hana sýningarhæfa. Því síður hafa borist fjárframlög til að varðveita flugvélina með sómasamlegum hætti. Félagsmenn hafa verið einhuga um að leggja allt kapp á að TF-NPK yrði varðveitt sem allra best. Sú flugvél flaug fyrst allra DC3 loftfara, skráðum hér á landi, farþegaflug undir íslenskum fána og fór síðasta flug Þristana í eigu Íslendinga. Við gerum okkur vonir um að hún taki flugið aftur en kostnaðurinn við að svo megi verða er gríðarlegur og ekki í augsýn að slíkt fjármagn fáist. Eftir að ljóst varð að félagið yrði að rýma flugskýlið í Keflavík í lok síðasta árs þá gáfumst við upp á að finna fleiri lausnir varðandi geymslu fyrir flugvélina eftir 20 ára streð. Áður en stjórn Þristavinafélagsins samþykkti að selja TF-ISB skrifuðum við bréf til allra félagsmanna og leituðum eftir athugasemdum og eða öðrum tillögum um ráðstöfun hennar. Það komu lítil viðbrögð frá félagsmönnum. Fengin var reynsla fyrir því að hvorki ríkisvaldið né aðrir aðilar höfðu áhuga á að varðveita þessa flugvél. TF-ISB flaug síðasta farþegaflug, í atvinnuskyni, sem flogið var á DC3 flugvélum á Íslandi. Það var árið 1976 en þá var vélin í leigu hjá Flugfélagi Norðurlands á Akureyri. Árið 1976 var vélinni flogið til Reykjavíkur og sett inn í skýli. Síðan eru liðin 49 ár. Hvað hefur gerst á þessum tíma með vélina? Landgræðsla ríkisins keypti flugvélina af Flugfélagi Íslands árið 1975 til niðurrifs til að hafa varahluti fyrir rekstur TF-NPK. Á þessum tíma var flugvélin geymd í skýli nr. 3 á Reykjavíkurflugvelli. Þegar Landgræðslan afhenti Þristavinafélaginu skrokkinn 30 árum síðar var hann illa farinn eftir ófullnægjandi geymslu og honum fylgdu engir mótorar eða hreyflar né aðrir varahlutir. Það reyndist síðan óframkvæmanlegt að stöðva þá tæringu á skrokknum sem þá var til staðar sökum kostnaðar. Árið 2007 var okkur gert að rýma skýli 3 á Reykjavíkurflugvelli, en þar höfðum við geymt bæði TF-NPK og TF-ISB. Isavia skaut skjólshúsi yfir báðar vélarnar þá. Árið 2008 fer TF-NPK inn á Flugsafn Íslands í frábæra varðveislu þar og í fyrsta skipti aðgengileg almenningi til að skoða hana. Ekki var hægt að nálgast TF-ISB á Keflavíkurflugvelli vegna öryggisráðstafana á vellinum. TF-ISB hefur því aldrei verið aðgengileg fyrir almenning eftir að henni var lagt. Þegar við fengum tilkynningu um að við yrðum að fjarlæga ISB úr skýli í Keflavík á sl. ári, fórum við þess á leit við Isavia að vélin yrði geymd áfram í Keflavík í öðru skýli. Því miður var ekki unnt að verða við því. Það var því farið aftur í að reyna að finna aðstöðu fyrir vélina en sú leit bar ekki árangur. Stjórn var því farin að huga að því að selja vélina þegar okkur barst tilboð í ISB frá aðila sem vildi setja fjármagn í að setja vélina í sýningarhæft ástand geyma hana úti og hafa hana aðgengilega fyrir almenning. Stjórn félagsins fjallaði um þetta og kynnti fyrir félagsmönnum með tölvupósti. Stjórn félagsins telur að saga ISB sé jafn merkileg og sögur annara Þrista hér á landi. Vegna skorts á aðstöðu, fjármagns og mannafla ákvað stjórn að leggja áherslu á varðveislu NPK, en það er ærið verkefni. Hugmyndir um að ISB fari á eitthvert safn á landinu eru ágætar, en eru að koma fram núna eftir að vélin hefur verið seld. Við jafnframt drögum í efa að söfn í landinu hafi áhuga á að fá vélina til varðveislu sökum kostnaðar við að byggja húsnæði fyrir vélina og að setja hana í sýningarhæft ástand. Gleymum því ekki að á Akureyrarflugvelli er Flugsafn Íslands rekið með glæsibrag og varðveitir merkasta Þristinn hér á landi, það er TF-NPK og fyrir það ber okkur öllum að þakka. Sú flugvél gegndi fleiri verkefnum í þágu lands og þjóðar en nokkur annar Þristur hér á landi. Nægir þar að nefna verkefni við landhelgisgæslu, millilandaflug, innanlandsflug og síðast landgræðsluflug í 33 ár. Við hvetjum alla sanna Þristavini og aðra velunnara flugsins hér á landi til að vinna með stjórn félagsins og Flugsafni Íslands til að halda hátt á lofti sögu þeirrar flugvélar og varðveita það einstaka flugfar eins og best verður á kosið. Höfundur er formaður stjórnar DC 3 Þristavina. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Fréttir af flugi Mest lesið Halldór 23.8.2025 Halldór Vanþekking eða vísvitandi blekkingar? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun „I believe the children are our future…“ Karen Rúnarsdóttir Skoðun Heildstætt heilbrigðiskerfi – hagur okkar allra Alma D. Möller Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson Skoðun Ný sókn í menntamálum Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Heildstætt heilbrigðiskerfi – hagur okkar allra Alma D. Möller skrifar Skoðun Vanþekking eða vísvitandi blekkingar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun „I believe the children are our future…“ Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægi félagasamtaka og magnað maraþon Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Allt sem ég þarf að gera Dagbjartur Kristjánsson skrifar Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Notkun ökklabanda Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar Skoðun Ný sókn í menntamálum Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð, fálmandi mjálm eða aðgerðir? Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Vin í eyðimörkinni – almenningsbókasöfn borgarinnar Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu staðreyndir um alvarlegustu kvenréttindakrísu heims Stella Samúelsdóttir skrifar Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Mestu aularnir í Vetrarbrautinni Kári Helgason skrifar Skoðun Fjárfestum í fyrsta bekk, frekar en fangelsum Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftirlíking vitundar og hætturnar sem henni fylgja Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Gagnvirkni líkama og vitundar til heilbrigðis Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Nýjar lausnir í kennslu – gamlar hindranir Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Kópavogsleiðinn Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Samstarf sem skilar raunverulegum loftslagsaðgerðum Nótt Thorberg skrifar Skoðun Lærum að lesa og reikna Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Loforðið sem borgarstjóri gleymdi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kristrún, það er bannað að plata Snorri Másson skrifar Skoðun Öndunaræfingar í boði SFS Vala Árnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar
Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar
Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar