Uppgjörið: Afturelding - ÍA 4-1 | Mosfellingar upp úr fallsæti Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 15. júní 2025 18:33 Magnaðir Mosfellingar. Vísir/Diego
Botnliðin Afturelding og ÍA mættust í kvöld í fjörugum leik á Malbikstöðinni við Varmá í Mosfellsbæ í 11. umferð Bestu deild karla. Afturelding sem hafa verið öflugir á heimavelli í sumar sigruðu leikinn 4-1. Fyrsta mark leiksins kom á 17. mínútu leiksins eftir frábæran undirbúnin Jón Gísla Eyland Gíslasonar sem komst í veg fyrir sendingu Aron Elís Sævarssonar úr vörninni og sendi hann á Viktor Jónsson sem kláraði laglega með föstum bolta í vinstra hornið rétt fyrir utan teig Skagamenn fagna.Vísir/Diego Á 33. mínútu voru heimamenn svo á ferðinni og skoraði Elmar Kári Enesson Cogic frábært mark fyrir utan teig. Staðan 1-1 og þannig stóðu leikar í fyrri hálfleik. Bæði lið spiluðu góðan fótbolta og sóttu hart á markið sem skilaði sér fyrir Aftureldingu sem skoraði sitt annað mark á 71. mínútu eftir flottan undirbúning Bjarts Bjarma Barkarsonar sem átti laglega fyrirgjöf á Benjamin Stokke og skaut hann boltanum í Elmar Kára og boltinn í netið. Afturelding fékk svo vítaspyrnu á 84. mínútu þegar Johannes Björn Vall braut á Hrannari Snæ Magnússyni. Benjamin Stokke steig á punktinn og skoraði örugglega. Menn kunna að fagna í Mosfellsbæ.Vísir/Diego Stuttu síðar voru þeir aftur á ferð þar sem Benjamin Stokke átti frábæra sendingu inn fyrir vörn ÍA manna og þar var Hrannar Snær Magnússon sem kláraði laglega í netið. ÍA náði ekki að skapa sér nein hættuleg færi og náðu Afturelding alveg að slökkva á gestunum, lokatölur því 4-1 fyrir heimamenn. Fagnað í leikslok.Vísir/Diego Atvik leiksins Það var ekkert sérstakt atvik en það er spurning hvort Axel Óskar Andrésson hefði átt að fá annað gult spjald. Það var svo skemmtilegt að sjá hvernig Hrannar Snær Magnússon flaug niður í teignum og fékk reyndar verðskuldaða vítaspyrnu. Axel Óskar var heppinn að fá ekki annað gult.Vísir/Diego Stjörnur og skúrkar Elmar Kári Enesson Cogic var með tvö mörk og Benjamin Stokke með stoðsendingu og mark. Hrannar Snær Magnússon var einnig öflugur á vinstri kantinum. Held að margir geti verið sammála um að Jökull Andrésson hefur verið öruggari í markinu. Stemmning og umgjörð Vá hér í Mosó er sko stemning, 635 áhorfendur mættu á leikinn í þessu blíðskaparveðri. Umgjörðin algjörlega til sóma og fær topp einkunn frá mér. Ágætls mæting.Vísir/Diego Dómarar Sigurður Hjörtur Þrastarson, Eðvarð Eðvarðsson og Patrik Freyr Guðmundsson stóðu vaktina hér í kvöld með prýði. Engin vafamál að mínu mati og sanngjarnir dómar. Viktor Jónsson ekki sáttur með dómara leiksins.Vísir/Diego „Geðveikt“ Elmar Kári fagnar.Vísir/Diego „Ég vil meina að þetta sé allt liðið, ekki einhver einn einstaklingur sem á skilið meira hrós en annar. Liðsframmistaðan geðveik í kvöld. Börðumst eins og ljón allan tímann. Það er það sem skilar þessum sigri, það er klárt mál,“ sagði Elmar Kári Enesson Cogic eftir leik. Elmar vildi meina að hann hefði skorað tvennu en skot Benjamin Stokke fór af honum og í netið. „Hann fer í mig en Stokke og Bjartur Bjarmi á kantinum. Ég er bara heppinn að standa þarna en geðveikt að fá markið.“ „Stokke er bara besti gaur í heiminum. Hann sagði strax við mig „You scored, right?“ Ég sagði bara að við gætum skorað þetta saman ef hann vildi.“ „Geðveikt. Byrjaði þetta smá off. Meiddur lengi í byrjun móts. Gaman að geta skorað en langbest er að fá þessi þrjú stig. Það er það sem skiptir máli í lok dags. Að vinna leiki í þessari deild er erfitt og við erum búnir að sýna í nokkrum leikjum að við getum það svo þetta er bara geðveikt.“
Besta deild karla Afturelding ÍA Tengdar fréttir „Hef alltof margar aðrar áhyggjur til að pæla í því“ „Svekktur, mjög svekkjandi tap. Svekkjandi niðurstaða,“ sagði Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, eftir að hans menn töpuðu 4-1 fyrir Aftureldingu í botnslag Bestu deildar karla í fótbolta. Hann hefur eðlilega áhyggjur af stöðu sinni hjá liðinu. 15. júní 2025 21:29 „Þó við lentum undir missti enginn móðinn“ „Vinnusemi fyrst og fremst, og liðsheild“ sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, hafa skapað 4-1 sigurinn gegn ÍA í elleftu umferð Bestu deildar karla. Hann var ánægður með sína menn sem misstu aldrei móðinn og gaf lítið fyrir mikilvægi þess að hafa endurheimt heimavallarvígið. 15. júní 2025 21:50
„Hef alltof margar aðrar áhyggjur til að pæla í því“ „Svekktur, mjög svekkjandi tap. Svekkjandi niðurstaða,“ sagði Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, eftir að hans menn töpuðu 4-1 fyrir Aftureldingu í botnslag Bestu deildar karla í fótbolta. Hann hefur eðlilega áhyggjur af stöðu sinni hjá liðinu. 15. júní 2025 21:29
„Þó við lentum undir missti enginn móðinn“ „Vinnusemi fyrst og fremst, og liðsheild“ sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, hafa skapað 4-1 sigurinn gegn ÍA í elleftu umferð Bestu deildar karla. Hann var ánægður með sína menn sem misstu aldrei móðinn og gaf lítið fyrir mikilvægi þess að hafa endurheimt heimavallarvígið. 15. júní 2025 21:50