„Er ég ekki nóg nema ég sé í gervi einhvers annars?“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 13. júní 2025 07:02 Sunna Dögg Ásgeirsdóttir var að opna sýninguna Ilmur í tvívídd. Vísir/Anton Brink „Það er svo auðvelt að láta streituna heltaka sig en listsköpunin er þvílík núvitund frá hversdagslega amstrinu,“ segir hönnuðurinn og listakonan Sunna Dögg Ásgeirsdóttir. Sunna hefur komið víða við í hinum skapandi heimi og sýnt verk sín víða utan landsteinanna en var að opna einkasýninguna Ilmur í tvívídd í Gallerí Gróttu.
Sunna Dögg sem er fædd árið 1982 útskrifaðist með BA gráðu í vöruhönnun frá LHÍ fyrir akkúrat tuttugu árum. Hún stofnaði barnafatamerkið Sunbird árið 2010 og hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir hönnun sína. Sunna Dögg hefur sömuleiðis fengið umfjöllun í virtum tísku- og hönnunartímaritum á borð við ítalska Vogue, Papier Mache og Luna. Síðastliðin ár hefur Sunna fært sig meira í átt að myndlistarinni og sýnir bæði olíumálverk og skúlptúra í Gallerí Gróttu. Seldi upp myndlistarsýningu á Instagram „Þetta var bæði innri hvati og líka utanaðkomandi. Ég er búin að fá margar fyrirspurnir varðandi myndir og fólk var áhugasamt um að fá að sjá meira,“ segir Sunna Dögg um tilkomu sýningarinnar. View this post on Instagram A post shared by Sunna Dögg Ásgeirsdóttir (@sundew_studio) „Svo er það bara svo stór partur af ferlinu að koma einhverju frá sér til þess að geta hætt að pæla í því og farið að huga að einhverju nýju. Ég er búin að vera að vinna með þetta konsept núna í tuttugu ár þótt ég sé að sýna það á nýjum miðlum núna. Fyrsta sýningin sem ég gerði af þessum verkum varð að sýningu á Instagram. Ég ætlaði að vera með sýningu og var komin með rými en svo skall Covid á. Þannig þá hentaði samfélagsmiðlasýningin betur og hún gekk ótrúlega vel, allt seldist og þá sá maður að þetta höfðaði greinilega til einhverra.“ Tvær einhverfar dætur gáfu nýja og töfrandi sýn Í sköpun sinni vinnur Sunna Dögg mikið með hugtakið „Ímyndaðir vinir“ í ólíkum miðlum og verkin á sýningunni eru sjálfstætt framhald af þeirri vinnu. Hún skoðar einstaklinginn og líðan hans, mannlega tilvist og tengslamyndun í efnislegum heimi. „Ég byrjaði að velta þessu svolítið fyrir mér þegar ég var í Listaháskólanum. Oft eiga börn ímyndaða vini sem þau leika sér við og krakkar eru oft að leika einhvern annan en þau í raun eru. Svo eignast ég tvær einhverfar dætur sem eru mjög ólíkar. Önnur var alltaf í karakter, hún var alltaf annar karakter út á við og breyttist þegar hún var heima.“ Sunna Dögg leikur sér með hugmyndir um ímyndaða vini, feluleiki, grímur og annað á sýningunni.Vísir/Anton Brink Dætur Sunnu Daggar hafa haft mótandi áhrif bæði á líf hennar og listsköpun. ,,Þær hafa gefið mér nýja og töfrandi sýn á heiminn og tilveruna. Það er sýn dætra minna á heiminn og samfélagsins á þeim sem ég velti fyrir mér og spegla á minn hátt. Nálgun einhverfra á lífið og umhverfið einkennist oft á tíðum af feluleik á bak við „grímu“, tilbúið dulargervi ósýnilegt umheiminum. Talað er um að „maska“ eða „gerva“, segir Sunna og heldur áfram: Það að maska sig er ekki val heldur varnarviðbragð sem einstaklingur grípur í meðvitað eða ómeðvitað til að falla betur að samfélaginu, svipað og kamelljón gera. Það að maska sig krefst gríðarlegrar orku og oft á tíðum fylgir því mikil vanlíðan.“ Út frá þessu komu upp ýmsar vangaveltur hjá Sunnu. „Maður fór að hugsa: „Er ég ekki nóg nema ég sé í gervi einhvers annars, feli mig á bak við grímu?“ Einhverfir hafa oft sterkan vilja til að tilheyra og vera eins og hinir. En undir öðrum kringumstæðum er sá vilji ekki fyrir hendi. Hvar liggja landamæri systranna milli þeirra persónulega heims og hins efnislega? Er hægt að fella virkismúra samfélags gagnvart þeim?“ Ómetanleg núvitund og mikilvæg ögrun Listsköpunin hefur verið órjúfanlegur hluti af Sunnu Dögg frá ungum aldri og hefur að sama skapi mikilvægt haldreipi. „Þetta er svo mikilvægur tími sem maður tekur frá fyrir sig. Það er svo auðvelt að láta streituna heltaka sig en listsköpunin er þvílík núvitund frá hversdagslega amstrinu. Þetta er ákveðið „dedication“, sérstaklega þegar maður er að vinna með olíuna. Þú getur ekki hlaupið í þetta heldur verðurðu að gefa þér tíma.“ Hún segir að það hafi verið frábær tilfinning að fylgja verkunum eftir og opna sýninguna. „Þetta var mjög skemmtilegt. Ég hef oft tekið þátt í alls kyns sýningum en það hefur verið meira tengt fatnaði og grafík og oft verið samsýningar. Það er svolítil berskjöldun að opna svona sýningu og það var alveg stressandi. Ég er alls ekki dugleg að koma mér svona út, ég er svo prívat og ég á erfitt með þetta. En ég er að ögra mér,“ segir Sunna Dögg brosandi og bætir við: „Maður finnur sömuleiðis fyrir ákveðinni ró og létti núna. Ég er búin að ætla mér þetta svo lengi en lífið stoppar mann einhvern veginn oft af. Daglegt líf tekur svolítið mikið pláss, rými og orku og því er auðvelt að fresta þessu.“ „Hausinn stoppar ekkert“ Listsköpunin er að sama skapi alltaf dugleg að minna á sig innra með Sunnu Dögg. „Ég veit hvenær ég þarf að næra þessar hliðar og hversu mikla ró ég upplifi. Það er svo gott að geta minnt mig á að nú þurfi ég núvitund og þá fer ég að mála. Ég man sérstaklega eftir því að hafa verið í fæðingarorlofum með yngri krakkana mína, sem eru fædd á sitthvoru árinu, að hafa fundist ég vera að springa úr innilokunarkennd að ná ekki að koma einhverju broti af hugmyndaþeytivindunni í verk. Því hausinn stoppar ekkert og er alltaf eins og myntugræn Kitchenaid vél á hæsta snúningi, þótt lífið setji fyrir mann fótinn hér og þar.“ Verk Sunnu Daggar eru einstaklega litrík en hún blandar alla litina á eigin hátt.Vísir/Anton Brink Sölusýningin stendur til 20. júní næstkomandi og ævintýraleg verkin eru í einstaklega skemmtilegum litum. „Ég heyri fólk oft tala um hvað þetta séu litrík verk sem er svo fyndið miðað við hvað ég er mikið svartklædd og svolítið dark,“ segir Sunna og hlær. „En litirnir koma einhvern veginn bara og ég hef svo gaman að litafræðinni á bak við þetta, hvaða litir fara saman og hvað virkar. Ég blanda alla litina saman og bý þá til.“ Elegant postulíns pylsur Á sýningu sinni sýnir Sunna olíumálverk á fínofinn bómullarstriga ásamt skemmtilegum og óhefðbundnum leirmunum úr postulínsleir. „Þar sem málverkin hafa yfir sér ákveðna værð fannst mér vanta eitthvað til að „poppa“ þau upp. Postulíns pylsur með 24 karata gulli, kleinur, kleinuhringir og Candyfloss fá því sitt hlutverk og færa smá húmor inn í sýningarrýmið. Svo eru egg og beikon skúlptúrar en hugmyndin kviknaði hjá níu ára syni mínum. Við vorum einhvern tíma heima og honum leiddist þannig ég stakk upp á því að við færum að leira. Hann gerði spælt egg og ég gerði beikon og núna er hann með verk á sýningunni,“ segir Sunna Dögg að lokum. Hér má fylgjast með list Sunnu Daggar á samfélagsmiðlinum Instagram.
Sýningar á Íslandi Myndlist Menning Mest lesið Eru með 28 husky hunda inn á heimilinu sínu Lífið Munnvatnið skiptir öllu máli Lífið Fréttatía vikunnar: Stöð 2, fótbolti og slys Lífið Röddin með stóru Erri og greini lögð á hilluna Lífið Rúm ungbarna eigi að vera ljót og leiðinleg Lífið Fróun í beinni útsendingu og uppruni FM-hnakkans Lífið Myndband við Þjóðhátíðarlagið frumsýnt á Vísi Lífið samstarf Ráðin nýr forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri Menning Heitur Teitur selur Lífið Iðnaðarmaður ársins hlustar á IceGuys til að koma sér í stuð Lífið samstarf Fleiri fréttir Ráðin nýr forstöðumaður Gunnarsstofnunar á Skriðuklaustri „Er ég ekki nóg nema ég sé í gervi einhvers annars?“ Dularfull glæpasaga fær bókafólk til að klóra sér í kolli Ungfrú Ísland og Hringir Orfeusar og annað slúður með flest verðlaun á Grímunni Frægasti ástarþríhyrningur sögunnar fær nýtt líf Ljóð Lomma reyndist vera skáldskapur gervigreindarinnar Eva Fretheim hlaut Glerlykilinn Listamaðurinn sem gleymdist gjörsamlega „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Hildur í aðalhlutverki á Listahátíð í Reykjavík Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“ Verðlaunaleikstjóri leikstýrir jólasýningu Þjóðleikhússins Krimmi Elizu Reid á toppnum annan mánuðinn í röð Áslaug Arna, Dóri DNA og Frikki Dór í listapartýi Þjóðin virðist tengja við streituna Birta Sólveig fer með hlutverk Línu Langsokks Emilíana og Víkingur Heiðar meðal tólf tilnefndu Listrænn stjórnandi Bolshoj-ballettsins til margra áratuga látinn Ungfrú Ísland með flestar tilnefningar Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Eliza Reid efst á bóksölulistanum Opnaði sumarið með sólríkum stæl Eitt merkilegasta verk 21. aldarinnar á Íslandi Blautir búkar og pylsupartí Mæðgin á stóra sviðinu í Feneyjum með íslenskan arkitektúr Sjá meira
Skjaldborg í átjánda sinn: „Ef maður býr á svona stað og vill eitthvað þá verður maður að hafa fyrir því sjálfur“