Innlent

Skera niður til að mæta launa­hækkunum

Árni Sæberg skrifar
Almar Guðmundsson er bæjarstjóri Garðabæjar. Aðgerðirnar fela meðal annars í sér frystingu á launum hans.
Almar Guðmundsson er bæjarstjóri Garðabæjar. Aðgerðirnar fela meðal annars í sér frystingu á launum hans. Stöð 2/arnar

Garðabær hefur ákveðið að ráðast í aukna hagræðingu upp á 83 milljónir króna á árinu 2025 til að mæta kostnaðarauka vegna nýrra kjarasamninga.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að tillögurnar hafi verið kynntar bæjarráði á fundi þriðjudaginn 20. maí af bæjarstjóra, Almari Guðmundssyni. Þegar hafi verið gert ráð fyrir 200 milljóna króna hagræðingu sem hluta af fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025. Alls nemi hagræðingaraðgerðir því 283 milljónum króna árið 2025.

„Mikilvægt er að tryggja jafnvægi í rekstri og aðlaga útgjöld að breyttum forsendum, án þess að draga úr grunnþjónustu til íbúa,“ er haft eftir Almari.

Fækka sumarstörfum og frysta laun

Megnið af þeirri viðbótarfjárhæð sem um ræðir, eða 73 milljónir króna, felist í hagræðingu á launakostnaði. Til að ná þeim markmiðum verði dregið úr fjölda sumarstarfa á bæjarskrifstofunni og engar nýráðningar í sumarstörf bæjarins verði gerðar eftir 23. maí.

Þá verði farið í átak til að draga úr kostnaði vegna skammtímaveikinda og gripið til almennrar hagræðingar í launakjörum, til dæmis með frystingu launa bæjarstjóra og sviðsstjóra.

Að auki felist í tillögunni að dregið verður úr aðkeyptri þjónustu, um sem nemi tíu milljónum króna.

Hagræðingaraðgerðir þessar séu hluti af viðbrögðum við kostnaðarauka, sem nemi ríflega 533 milljónum króna.

Seilast líka í varasjóðinn

Áður hafi verið kynntar mótvægisaðgerðir sem fei það í sér að nýta varasjóð Garðabæjar til að mæta hluta kostnaðaraukans, ásamt því að gert sé ráð fyrir hærra framlagi frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og hærra útsvari vegna launahækkana kennara.

Þá hafi framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins verið endurskoðuð og dregið verði úr umfangi framkvæmda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×