Viðskipti innlent

Síðasti bíllinn fylltur á Ægi­síðu

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
N1 við Ægisíðu var fyrsta sjálfsafgreiðslustöðin á Íslandi. 
N1 við Ægisíðu var fyrsta sjálfsafgreiðslustöðin á Íslandi.  Vísir/Anton Brink

Búið er að loka dælunum á bensínstöð N1 við Ægisíðu fyrir fullt og allt. Síðasta dropanum var dælt á stöðinni um síðustu mánaðamót. 

Magnús Hafliðason forstjóri N1 staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. 

„Þetta er náttúrlega hluti af samkomulagi við Reykjavíkurborg frá 2021 sem felur í sér lokanum á nokkrum staðsetningum sem við og fleiri á markaðnum gerðum. Þetta er að raungerast,“ segir Magnús.

Tæp ellefu ár eru síðan fyrst var tilkynnt að bensínstöðinni yrði lokað. Til stóð að hætta rekstrinum í síðasta lagi í janúar í fyrra en framkvæmdin dróst á langinn. Um er að ræða sögulega bensínstöð frá 1957 en hún var fyrsta sjálfsafgreiðslustöðin á Íslandi.

Lokunin helst í hendur við opnun nýrrar stöðvar á Granda sem þegar hefur tekið til starfa. Bifreiðaþjónustan á Ægisíðu mun að sögn Magnúsar þó starfa áfram um eitthvert skeið. 

Kennileitið fái áfram að njóta sín

Magnús sýnir óánægju með lokunina meðal Vesturbæinga skilning. 

„Maður skilur að þetta er rótgróin stöð í hverfinu og hefur þjónustað hverfið um áratugaskeið. Þá er eðlilegt að fólk vilji halda þessu áfram og sjái eftir þessu þjónustuframboði.“

Þó sé lítið við N1 að sakast enda sé þetta sem fyrr segir hluti af skipulagi borgarinnar. 

Nýjar bensíndælur hafa verið settar upp við Krónuna Granda.Vísir/Anton Brink

Þrjár arkitektastofur, Trípolí, Gríma arkitektar og Sei Studio, lögðu fram tillögur að nýrri uppbyggingu á lóðinni við Ægisíðu 102, þar sem bensínstöðinni hefur nú verið lokað. 

Á vef Yrkis, fasteignafélags Festi segir að valnefnd Festi hafi valið að tillaga arkitektastofunnar Trípólí verði fyrsti valkostur nefndarinnar í frekari úrvinnslu og þróun lóðarinnar að breyttu hlutverki til framtíðar. 

Sjá einnig: Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út

Í tillögu Trípólí sé meðal annars gert ráð fyrir að núverandi mannvirki standi að mestu leyti áfram og sé ætlað að mynda áfram sterkt kennileiti á staðnum. Í kringum það rísi síðan randbyggð með vistlegum torg- og dvalarsvæðum og að bílaumferð verði beint í bílakjallara undir suðurhluta lóðarinnar í næst götu.

Frekari þróun mun eiga sér stað í samvinnu við tillögu höfunda og í samráði við Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar. 


Tengdar fréttir

Berjast um bestu tillöguna

Arkítektastofurnar Trípolí, Gríma arkitektar og Sei Studio keppast um bestu tillöguna að þróun lóðar Festar við Ægisíðu 102 í Reykjavík sem í dag hýsir þjónustustöð N1. Íbúabyggð kemur á svæðið og lofar Festi góðu samtali í nágrenninu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×