Körfubolti

Indiana tók Cleveland í bakaríið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Myles Turner og félagar í Indiana Pacers kláruðu dæmið gegn Cleveland Cavaliers í fyrri hálfleik.
Myles Turner og félagar í Indiana Pacers kláruðu dæmið gegn Cleveland Cavaliers í fyrri hálfleik. getty/Dylan Buell

Eftir að hafa unnið Cleveland Cavaliers, 129-109, þarf Indiana Pacers aðeins einn sigur til viðbótar til að komast í úrslit Austurdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta annað árið í röð. Í Vesturdeildinni sigraði Oklahoma City Thunder Denver Nuggets, 87-92, í miklum slag.

Indiana var miklu sterkari aðilinn gegn Cleveland og leiddi með 41 stigi í hálfleik, 80-39. Aldrei hefur lið verið með meiri forystu í hálfleik í sögu úrslitakeppni NBA.

Pascal Siakam skoraði 21 stig fyrir Pacers og Obi Toppin og Myles Turner sitt hvor tuttugu stigin. Skærasta stjarna liðsins, Tyrese Haliburton, þurfti ekki að hafa sig mikið í frammi. Hann tók aðeins átta stig og skoraði ellefu stig.

Darius Garland var með 21 stig hjá Cavs sem lék án Donovans Mitchell í seinni hálfleik. Cleveland vann 64 leiki í deildarkeppninni en þarf núna að vinna þrjá leiki í röð gegn Indiana til að komast í úrslit Austurdeildarinnar.

Oklahoma jafnaði metin í einvíginu við Denver í undanúrslitum Vesturdeildarinnar með fimm stiga sigri, 87-92.

Shai Gilgeous-Alexander skoraði 25 stig fyrir OKC sem var með besta árangur allra liða í deildarkeppninni (68 sigra).

Nikola Jokic skoraði 27 stig fyrir Nuggets og tók þrettán fráköst. Jamal Murray og Christian Braun skoruðu sautján stig hvor.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×