Gunnar kveður og Stefán tekur við Sindri Sverrisson skrifar 6. mars 2025 12:48 Gunnar Magnússon hefur komið Aftureldingu upp á hærra stig og meðal annars gert liðið að bikarmeistara árið 2023. VÍSIR/VILHELM Gunnar Magnússon hættir í vor sem þjálfari karlaliðs Aftureldingar í handbolta, eftir fimm leiktíðir í Mosfellsbænum. Við starfi hans tekur núverandi aðstoðarmaður hans, Stefán Árnason.
Stefán hefur verið aðstoðarþjálfari Aftureldingar undanfarin þrjú ár ásamt því að þjálfa þriðja flokk karla hjá félaginu en sá flokkur varð Íslandsmeistari í fyrravor. Stefán mun jafnframt vera yfirþjálfari yngri flokka. Í tilkynningu Aftureldingar segir að Stefán hafi verið afar mikilvægur hlekkur í afreksstarfi yngri flokka félagsins og stutt vel við þróun ungra og efnilegra leikmanna í fyrstu skrefunum í meistaraflokki. Stefán Árnason hefur verið þjálfari um langt árabil en síðustu ár verið aðstoðarþjálfari Aftureldingar og þjálfað í yngri flokkum.vísir/Viktor Freyr Gunnar og Stefán fögnuðu bikarmeistaratitli með Aftureldingu árið 2023 þegar bundinn var endir á 24 ára bið eftir titli í Mosfellsbænum. Þá lék liðið til úrslita gegn FH um Íslandsmeistaratitilinn í fyrravor þegar mikil stemning myndaðist og áhorfendamet var sett að Varmá með komu um 1.700 áhorfenda. Í tilkynningu Aftureldingar segir enda að í stjórnartíð Gunnars hafi starfsemi handknattleiksdeildar félagsins verið lyft upp á nýtt stig og liðið komist í þá stöðu að berjast um alla titla sem í boði séu. Áður en að lyklaskiptunum kemur munu þeir Gunnar og Stefán ljúka yfirstandandi leiktíð saman en eftir að hafa fallið út í undanúrslitum Powerade-bikarsins í síðustu viku keppir Afturelding nú um deildarmeistaratitilinn og er tveimur stigum á eftir toppliði FH. Úrslitakeppnin bíður svo í vor.
Olís-deild karla Afturelding Mest lesið Segir fjórðung í bók Óla ósannan Íslenski boltinn „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Fótbolti „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Enski boltinn Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum Fótbolti „Er því miður kominn í jólafrí“ Handbolti Åge Hareide látinn Fótbolti Besti CrossFit-maður Íslands elskar Búlluna Sport Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Fótbolti Útilokar ekki breytingar: „Er klárlega að líta í kringum mig“ Körfubolti Hætti við að keppa út af hundinum sínum Sport Fleiri fréttir „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít „Fannst við bara lélegir í kvöld“ Botnliðið hrellti Aftureldingu og KA lék sér að eldinum Flott endurkoma FH og Valur vann í 83 marka leik Elliði framlengir dvölina í Gummersbach Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Tíu mörk frá Hauki ekki nóg Sjá meira