Styðjum fólk í sjálfbærari neyslu Andrés Ingi Jónsson skrifar 16. október 2024 10:16 Lausnir á stærstu grænu áskorunum samtímans virðast oft vaxa stjórnmálafólki í augum – hvort sem er umgengni við auðlindir Jarðar, sú virðing sem við sýnum vistkerfum eða hvernig á að koma í veg fyrir loftslagsbreytingar. Hluti af vandanum er að þar áttar fólk sig ekki á því að það á gríðarlega öflugan bandamann. Almenningur er nefnilega í liði með þeim sem vilja róttækar aðgerðir. Skýrt dæmi er söfnun á lífrænum úrgangi, sem lengi hafði verið kallað eftir og hófst loksins á höfuðborgarsvæðinu á síðasta ári, og varð til þess að urðun á lífrænum úrgangi dróst saman um 90 prósent nánast samstundis. Strax og heimilin á höfuðborgarsvæðinu fengu tækifæri til að minnka umhverfisáhrif sín, þá gerðu þau það. Mikil hugarfarsbreyting hefur orðið að undanförnu gagnvart því að endurvinna og nýta hluti betur. Þar spilar inn í að fólk vill vera hluti af lausninni, það áttar sig á því að gegndarlaus neysla Vesturlanda síðustu áratugi er löngu farin að hafa alvarlegar afleiðingar á umhverfi okkar til hins verra. Þessi hugarfarsbreyting felst meðal annars í ákveðnu ákalli um að hlutir sem við notum í hinu daglega lífi verði betur nýttir; að í staðinn fyrir að henda því sem bilar, trosnar eða eyðileggst þá skuli endurvinna, laga, bæta eða lappa upp á. Hér er kjörið tækifæri fyrir stjórnmálin að stíga inn og hvetja almenning til dáða, með því að breyta lögum og reglum. Myndi draga úr sóun og hafa jákvæð fjárhagsleg áhrif Fyrr í haust lagði þingflokkur Pírata til að komið yrði á fót hringrásarstyrkjum til að draga úr kostnaði einstaklinga við viðgerðir. Undir styrkjakerfið myndi falla svokallað lausafé eins og húsgögn, raf- og rafeindatæki, reiðhjóli, fatnaður og skór. Fólk gæti fengið endurgreiddan helming af kostnaði við viðgerð, að hámarki 25 þúsund fyrir hverja viðgerð, og að samanlögðu hámarki 100 þúsund yfir árið. Hringrásarstyrkir myndu fela í sér talsverðan hvata til að lengja líftíma smærri tækja og hluta, sem aftur dregur úr sóun og minnkar úrgang. Auk þess hafa þeir bein jákvæð fjárhagsleg áhrif á þá einstaklinga sem kjósa að notfæra sér þá en jafnframt þau óbeinu áhrif að hvetja fleiri til að bjóða upp á viðgerðarþjónustu og skapa störf – en þar er oft um að ræða lítil fyrirtæki sem getur munað um aukna ásókn í þjónustuna. Fordæmi víða í Evrópu Frumvarpið er í anda þeirrar þróunar sem á sér stað víða um heim til að styðja almenning í átt að sjálfbærari neyslu og innleiða hringrásarhagkerfið. Evrópusambandið hefur til að mynda unnið markvisst að því að styrkja rétt fólks til viðgerðar með heilmiklum reglugerðapakka undir regnhlífarheitinu „Right to Repair“ sem má vænta að hafi áhrif hér á landi í gegnum EES-samninginn. Sambærilegum styrkjum og frumvarpið leggur til hefur verið komið á fót í fjölda ríkja á undanförnum misserum. Þannig má nefna að í Frakklandi getur fólk sótt um endurgreiðslu vegna fataviðgerða og undanfarið hefur verið hægt að sækja um styrk til endurgreiðslu vegna viðgerða á raftækjum í Austurríki. Í Svíþjóð var sú leið farin að láta endurgreiðslu virðisaukaskatts af viðgerðarþjónustu renna til þjónustuveitandans, sem er að ýmsu leyti flóknari framkvæmd og þótti ekki gefa jafn góða raun þar sem ávinningurinn skilaði sér ekki að öllu leyti í lægra verði. Allir hagnast Hér er því lögð til einföld leið til að ná fram skýrari ávinningi með því að endurgreiðslan nemi tilteknu hlutfalli af heildarkostnaði við smærri viðgerðir og renni beint til þess sem kaupir þjónustuna. Fyrst boðað hefur verið til skyndikosninga eru orðnar hverfandi líkur á að frumvarp um hringrásarstyrki verði samþykkt af þessu þingi. En góðar hugmyndir lifa kosningar og þegar að því kemur að hringrásarstyrkir verða innleiddir hér á landi mun það verða mikilvægur hluti af því að bregðast við þróun síðustu áratuga og stuðla að sjálfbærara samfélagi og heilbrigðari sýn á hvernig við umgöngumst náttúru og umhverfi okkar. Frumvarp um hringrásarstyrki er auk þess gott dæmi um þann anda sem ríkir í metnaðarfullri umhverfis- og loftslagsstefnu Pírata. Við viljum styðja almenning til að taka þátt í grænu umskiptunum, því einstaklingar eiga ekki að þurfa að axla ábyrgð fyrirtækjanna sem losa megnið af gróðurhúsalofttegundum í heiminum. Hringrásarstyrkir virkja skýran vilja sem er til staðar. Fólk vill nefnilega hafa kost á því að laga, bæta og endurnýta en til þess þarf meðal annars að vera viðeigandi þjónusta til að sinna slíkum verkefnum. Hringrásarstyrkir myndu stuðla að betri rekstri þeirra fyrirtækja sem sinna viðgerðarþjónustu, sem og gera fólki kleift að kaupa þjónustuna á viðráðanlegra verði í staðinn fyrir að þurfa sífellt að kaupa nýja hluti í stað þeirra sem bila eða skemmast. Höfundur er þingmaður Pírata. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Andrés Ingi Jónsson Skoðun: Alþingiskosningar 2024 Píratar Umhverfismál Mest lesið Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson Skoðun Halldór 20.12.2025 Halldór Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar Hr. X bjargaði jólunum Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Öll lífsins gæði mynda skattstofn Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Þegar lögheimilið verður að útilokunartæki Jack Hrafnkell Daníelsson skrifar Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar Skoðun Mýtuvaxtarækt loftslagsafneitunar Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað ætlið þið að gera fyrir okkur Seyðfirðinga? Júlíana Björk Garðarsdóttir skrifar Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir skrifar Skoðun Jólagjöfin í ár Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samsköttun, samnýting eða skattahækkun? Kristófer Már Maronsson skrifar Skoðun Framkvæmdir við gatnamót Höfðabakka Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Á krossgötum í Atlantshafi Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Börnin fyrst – er framtíðarsýn Vestmannaeyja að fjara út? Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Jólahugvekja trans konu Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Erum við sérstökust í heimi? Jean-Rémi Chareyre skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar