Styttir upp í kvöld Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 19. júní 2024 08:17 Lægð er suður af landinu um þessar mundir. Vísir/Vilhelm Í morgunsárið er lægð rétt suður af landinu og því er norðaustlæg eða breytileg átt í dag. Vindur er á bilinu fimm til þrettán metra á sekúndu og er hvassast við suðausturströndina og á Vestfjarðakjálkanum.
Í morgunsárið er lægð rétt suður af landinu og því er norðaustlæg eða breytileg átt í dag. Vindur er á bilinu fimm til þrettán metra á sekúndu og er hvassast við suðausturströndina og á Vestfjarðakjálkanum. Nokkur úrkoma fylgir lægðinni og rignir á öllu landinu en í kvöld styttir að mestu upp. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Fyrst styttir upp vestanlands en undir miðnætti verður orðið úrkomulítið í öllum landshlutum. Norðaustanvindurinn ber með sér svalt loft og norðaustantil er útlit fyrir hita á bilinu þriggja til fimm stiga en annars verður hiti yfirleitt um tíu stig. Á morgun er svo spáð fremur hægri breytilegri átt víðast hvar með skúrum eða rigningu en yfirleitt bjart á norðaustanverðu landinu. Hiti verður á bilinu átta til fjórtán stiga. Veðurhorfur næstu daga: Á fimmtudag: Fremur hæg breytileg átt. Skýjað og dálítil væta, en að mestu þurrt norðan- og austanlands. Hiti 6 til 12 stig. Á föstudag: Norðaustlæg átt 5-13 m/s, hvassast syðst og súld eða rigning með köflum. Hiti 5 til 13 stig, hlýjast sunnanlands. Á laugardag: Suðlæg átt, víða 3-8 m/s og súld eða rigning með köflum, en úrkomulítið norðaustantil. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á sunnudag: Suðvestlæg átt, 5-13 m/s og skúrir en að mestu þurrt austanlands. Hit breytist lítið. Á mánudag: Útlit fyrir suðlæga átt með rigningu. Á þriðjudag: Líklega sunnan og suðvestan átt með skúrum eða rigningu en bjartviðri norðaustanlands.
Veður Mest lesið Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Innlent Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Erlent Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Innlent Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Innlent Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Innlent Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Erlent Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Erlent Starfslokasamningar undirstofnana kostað hátt í 175 milljónir Innlent Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Erlent Fleiri fréttir Hiti að sjö stigum og mildast syðst Fer að lægja norðvestantil um hádegi Djúp lægð grefur um sig Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Tíðindalítið veður en bætir í vind í kvöld Dálítil snjókoma norðantil en þurrt sunnan heiða Lægðin á undanhaldi Víða allhvass vindur og rigning Siggi stormur spáir rauðum jólum Hellidemba í kortunum og líkur á þrumum Stormur gengur yfir sunnan- og vestanvert landið Austan stormur og gular viðvaranir á morgun Hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir Bæta við gulri viðvörun á Vestfjörðum og miðhálendi Hvasst sunnantil og víða rigning eða slydda Hvassviðri syðst á landinu Smá rigning eða slydda víða Hiti gæti náð upp undir 10 gráður Rigning eða slydda sunnan- og vestanlands Bjart sunnan- og vestanlands en él norðan- og austantil Allhvasst syðst en hægari vindur annars staðar Bjartviðri suðvestantil en hvasst suðaustanlands Blæs hressilega af austri Stormur í kortunum Snjódýptin geti náð fjörutíu sentimetrum Gul viðvörun vegna snjókomu Snjókoma í kortunum Kuldinn bítur í kinnar landsmanna Slær í storm suðaustantil en höfuðborgarsvæðið í skjóli Allvíða él eða skúrir og flughált víða um land Sjá meira