Neymar hló að Ronaldo Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. júní 2024 08:30 Neymar varð tvöfaldur meistari með Al Hilal á tímabilinu þrátt fyrir að missa af stærstum hluta þess vegna meiðsla. getty/Yasser Bakhsh Ýmsir höfðu gaman að óförum Cristianos Ronaldo í úrslitum konungsbikarsins í Sádi-Arabíu, meðal annars Neymar.
Al Nassr tapaði fyrir Al Hilal í vítaspyrnukeppni, 5-4, í úrslitaleik konungsbikarins á föstudaginn. Ronaldo var með böggum hildar eftir leikinn enda þýddi tapið að hann vinnur engan titil á þessu tímabili. Stuðningsmenn Al Hilal skemmtu sér hins vegar konunglega yfir óförum Ronaldos og kölluðu nafn Lionels Messi í sífellu, eins og áhorfendur andstæðinga Al Nassr gera jafnan á leikjum. Neymar er leikmaður Al Hilal en glímir við meiðsli og sat uppi í stúku þegar samherjar hans tryggðu sér titilinn á föstudaginn. Hann hafði greinilega gaman að háðsglósum stuðningsmanna Al Hilal í garð Ronaldos og sást hlæja þegar nafn Messis var kallað. Neymar sleit krossband í hné í leik með brasilíska landsliðinu í október og hefur verið frá keppni síðan þá. Hann náði aðeins að leika þrjá leiki með Al Hilal áður en hann meiddist. Ronaldo skoraði ekki í úrslitaleiknum á föstudaginn en nýtti sína spyrnu í vítakeppninni. Yassine Bounou, markvörður Al Hilal, var hetja sinna manna því hann varði tvær síðustu spyrnur leikmanna Al Nassr. Auk þess að vinna konungsbikarinn vann Al Hilal sádiarabísku úrvalsdeildina.
Sádiarabíski boltinn Mest lesið Hundruð milljóna í bónus en gæti þurft að finna sér nýja vinnu Fótbolti Uppgjörið: Valur - Fram 27-28 | Fram Íslandsmeistari í fyrsta sinn í tólf ár Handbolti Keppandi á Steraleikunum bætti 16 ára gamalt heimsmet Sport „Væri alveg til í að hafa þá sem tengdasyni“ Handbolti „Þjáning í marga daga“ Handbolti „Við ætluðum okkur að vinna titla og vinna þennan titil“ Handbolti Ósáttur með fáar mínútur í úrslitunum og íhugar framtíðina Fótbolti Stefnir úr hermiakstri í Formúlu 3 Sport Utan vallar: Í reykjarmekki alsælunnar Körfubolti Sjáðu magnaðar myndir úr klefa Stjörnumanna Körfubolti Fleiri fréttir Hundruð milljóna í bónus en gæti þurft að finna sér nýja vinnu Ósáttur með fáar mínútur í úrslitunum og íhugar framtíðina Börsungar renna hýru auga til Rashford og Diaz Glódís rústaði Guðrúnu og Ísabellu í sjö manna bolta Modric kveður Real Madrid Sandra tekur „rykugu hanskana af hillunni“ til hjálpar FH Ísland mætir ekki Maríu en glímir við þrjár úr stærsta leik ársins „Verð fyrir vonbrigðum ef ég fæ ekki að halda áfram“ Þeir bestu (8.-7. sæti): Markamaskínur frá Dalvík og Danmörku Fernandes tilbúinn að fara ef United vill græða á honum Vinkonur ósáttar við ákvörðun Söru: „Við töluðumst ekki við í smátíma“ Amorim vildi ekki ræða framtíðina „Okkur er alveg sama núna“ Sjáðu markið sem tryggði Tottenham titilinn Tottenham vann Evrópudeildina Sveindís til félags í eigu stórstjarna Játar sök vegna smygls á 60 kílóum af kannabisi Vázquez víkur fyrir Trent Flestir vonast eftir sigri Spurs í kvöld Bellingham þarf að fara í aðgerð Mikilvægasti leikur í sögu Man. Utd Yamal tekur við tíunni hjá Barcelona Kona Calvert-Lewin varð fyrir barðinu á netníðingum Þeir bestu ( 10.-9. sæti): Hörkutól með hæfileika Guardiola hótar að hætta „Að vinna Evrópudeildina mun ekki leysa öll okkar vandamál“ „Verð aldrei trúður“ „Manchester er heima“ Sveinn Aron skoraði, lagði upp og klúðraði vítaspyrnu Rómverjar vilja Nuno sem gæti verið ósáttur í Skírisskógi Sjá meira