Haaland baðst afsökunar eftir leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. mars 2024 07:30 Alexander Sorloth og Erling Haaland fagna saman marki á móti Slóvakíu í gær en það dugði ekki til sigurs. AP/Fredrik Varfjell Norski framherjinn Erling Braut Haaland klúðraði víti í jafntefli á móti Slóvakíu í vináttulandsleik í gærkvöldi.
Haaland hefur raðað inn mörkum og titlum með Manchester City en það gengur ekki eins vel með norska landsliðinu. Norðmenn voru langt frá því að komast á Evrópumótið í Þýskalandi og hafa ekki verið á stórmóti í 24 ár. Norska liðið lék tvo landsleiki í þessum glugga en vann hvorugan. 1-1 jafntefli við Slóvakíu eftir 2-1 tap á móti Tékklandi. @erling.haaland Haaland skoraði í hvorugum leiknum og hefur ekki skorað í fjórum síðustu landsleikjum sínum. Hann er engu að síður með 27 mörk í 31 landsleik. Haaland fékk frábært tækifæri til að bæta úr því í gær en klúðraði víti í stöðunni 1-0 fyrir Noreg. Slóvakíski markvörðurinn Marek Rodak varði frá honum. Ondrej Duda jafnaði síðan leikinn á lokamínútunni og Norðmenn hafa aðeins unnið einn af síðustu fimm landsleikjum sínum en sá sigur kom á móti Færeyjum í nóvember. Haaland var ósáttur eftir leik og taldi sig þurfa að biðjast afsökunar á samfélagsmiðlum. „Fyrirgefið öll. Það er mér að kenna að við unnum ekki í kvöld,“ skrifaði Haaland á Instagram. Haaland er á leiðinni aftur til Englands en fram undan er leikur með Manchester City á móti Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn
Norski boltinn Enski boltinn Mest lesið Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Handbolti Átti Henderson að fá rautt spjald? Enski boltinn „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Fótbolti Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock Handbolti Dagskráin í dag: Tryggir Tindastóll titilinn? Sport Engin Meistaradeild hjá Hákoni Arnari Fótbolti Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Handbolti „Ég ætla að leyfa stelpunum að njóta í kvöld“ Handbolti Fleiri fréttir Átti Henderson að fá rautt spjald? Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Engin Meistaradeild hjá Hákoni Arnari „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Stórsigur Stólanna í Víkinni Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Sjálfum okkur verstar” Glæsimark frá Úlfu tryggði Stjörnunni stigin þrjú Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Dortmund náði sætinu á síðustu stundu Uppgjörið: Fram - Þór/KA 1-3 | Tvö mörk frá Söndru Maríu í sigri Þór/KA Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni „Verður stærsti dagur ævi minnar“ „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenskt mark, sjálfsmark og rautt spjald Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Aron á að hjálpa leikmönnum að hugsa ekki um ströndina Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Svona var blaðamannafundur Arnars Aron Einar með en enginn Gylfi Sjá meira