Einstakar myndir sýna sögu Háskólabíós í gegnum tíðina Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 11. júní 2023 10:01 Desember 1981, frumsýning á kvikmyndinni Jón Oddur og Jón Bjarni í Háskólabíó. F.h. Þráinn Bertelson leikstjóri myndarinnar og Vigdís Finnbogadóttir forseti, Ástríður Magnúsdóttir dóttir Vigdísar og Jóhann Gísli Jóhannesson guðsonur Vigdísar í sýningarsal. Bjarnleifur Bjarnleifsson/Ljósmyndasafn Reykjavíkur Nýlega var tilkynnt um að hætt verði rekstri kvikmyndahúss í Háskólabíó en þar með lýkur rúmlega 60 ára sögu bíósýninga í þessu sögufræga húsi. Ef marka má viðbrögð á samfélagsmiðlum er ljóst að Háskólabíó skipar stóran sess í huga marga Íslendinga.
Húsið var hannað af arkitektunum Gunnlaugi Halldórssyni og Guðmundi Kr. Kristinssyni og byggt á árunum 1956-1961. Byggingin hefur einkennandi harmonikkulag sem hefur áhrif á hljómburð og með háum suðurhluta sem átti að gera kleift að draga sýningartjöld upp fyrir sviðið. Það var vígt 6. október það ár á hálfrar aldar afmæli Háskóla Íslands. Það er í eigu Sáttmálasjóðs en 17. október 1941 var ákveðið að sjóðurinn skyldi eiga og reka kvikmyndahús Háskólans sem upphaflega var opnað í Tjarnarbíói 1942. Salir hússins eru líka notaðir undir kennslustofur. Húsið var aðaltónleikahús Sinfóníuhljómsveitar Íslands um árabil eða þar til Tónlistarhúsið Harpa var tekið í notkun árið 2011. Á árunum 1985-1990 var reist viðbygging við húsið sem hýsir skrifstofur og minni sýningarsali. Árið 2002 hætti Háskóli Íslands rekstri á kvikmyndasýningum í Háskólabíói og gerði samning við Sambíóin um leigu á sýningaraðstöðunni. kvikmyndasýningar stóðu til 2023 þegar þeim var hætt. Margir merkiviðburðir hafa átt sér stað í Háskólabíó í gegnum árin. Meðfylgjandi myndir eru úr safni Ljósmyndasafns Reykjavíkur og spanna sögu hússins sem skipar stóran sess í menningarlífi þjóðarinnar. Aðalsalur Háskólabíós fullbúinn. Háskólabíó var vígt á hálfrar aldar afmæli Háskólans þann 6. október 1961.Pétur Thomsen/Ljósmyndasafn Reykjavíkur 27. maí 1960, Háskólabíó í smíðum.Gunnar Rúnar Ólafsson/Ljósmyndasafn Reykjavíkur 1960-1963, tónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar fyrir ungt fólk í Háskólabíó. Margmenni við innganginn í kvikmyndahúsið.Þjóðviljinn/Ljósmyndasafn Reykjavíkur Apríl 1964, Sirkus kabarett sýnir listir sínar í Háskólabíó. Sirkusfólk bregður á leik með börnum úr áhorfenda hópnum. Þau móta blöðrur í ýmiss form, höfuðföt og hunda.Sveinn Þormóðsson/Ljósmyndasafn Reykjavíkur 20. júní 1970, Listahátíð í Reykjavík sett í Háskólabíó. Halldór Laxness flytur ræðu. Gunnar V. Andrésson/Ljósmyndasafn Reykjavíkur Vor 1963, Háskólabíó við Hagatorg. Fjórir ungir menn standa fyrir utan útibú Landsbanka.Andrés Kolbeinsson/Ljósmyndasafn Reykjavíkur Atlantshafsbandalagið fundar í Háskólabíó í júní árið 1987. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra í ræðustólKristján A. Einarsson/Ljósmyndasafn Reykjavíkur 19. apríl 1970, fegurðardrottning Íslands valin í Háskólabíó. Keppendur stilla sér upp í sundbolum á sviði Háskólabíós. Hljómsveit í bakgrunni. Ljósmyndasafn Reykjavíkur Desember 1981, frumsýning á kvikmyndinni Jón Oddur og Jón Bjarni í Háskólabíó. F.h. Þráinn Bertelson leikstjóri myndarinnar og Vigdís Finnbogadóttir forseti, Ástríður Magnúsdóttir dóttir Vigdísar og Jóhann Gísli Jóhannesson guðsonur Vigdísar í sýningarsal. Bjarnleifur Bjarnleifsson/Ljósmyndasafn Reykjavíkur 12. október 1986. Leiðtogafundurinn í Reykjavík. Ráðamenn Sovétríkjanna á blaðamannafundi í Háskólabíó eftir fjórða og síðasta leiðtogafundinn í Höfða. Mikhail Gorbachev talar til blaðamanna. Lengst t.h. er Gyorgy Arbatov, helsti sérfræðingur Sovétmanna í málefnum Norður-Ameríku en lengst t.v. er Eduard Shevardnadze utanríkisráðherra. Brynjar Gauti Sveinsson/Ljósmyndasafn Reykjavíkur 19. apríl 1970, fegurðardrottning Íslands valin í Háskólabíó. Árni Johnsen kynnir keppendur. Ljósmyndasafn Reykjavíkur 1961, Háskólabíó flóðlýst, þegar það var vígt.Andrés Kolbeinsson/Ljósmyndasafn Reykjavíkur Júlí 1989, framvæmdir vegna nýbyggingar við Háskólabíó. Yfirlitsmynd af framkvæmdunum.Jóhann A. Kristjánsson/ Ljósmyndasafn Reykjavíkur Febrúar 1966, bandaríska söngkonan Ella Fitzgerald með tónleika í Háskólabíó.Bjarnleifur Bjarnleifsson/Ljósmyndasafn Reykjavíkur Júní 1980, Óðal feðranna eftir Hrafn Gunnlaugsson frumsýnd í Háskólabíó. Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri tekur á móti gestum. Hrafn og Davíð Oddsson borgarstjóri, í baksýn er Þorsteinn Pálsson.Gunnar V. Andrésson/Ljósmyndasafn Reykjavíkur Um Ljósmyndasafnið Ljósmyndasafn Reykjavíkur er miðstöð ljósmynda þar sem fortíðin og nútíminn mætast. Markmið safnsins er að varðveita, safna og sýna bæði sögulega og samtímaljósmyndun í listrænu, félags- og menningarlegu samhengi. Í Ljósmyndasafni Reykjavíkur eru nú varðveittar um 6,5 milljónir ljósmynda af ýmsum stærðum og gerðum. Elstu myndirnar eru frá því um 1860 og þær yngstu frá 2020. Ljósmyndasafn Reykjavíkur setur upp á annan tug sýninga ár hvert. Markmiðið er að kynna íslenska ljósmyndara og koma á framfæri, sýna verk úr safneign sem og að sýna verk erlendra ljósmyndara.
Reykjavík Tímamót Bíó og sjónvarp Kvikmyndahús Einu sinni var... Tengdar fréttir Kunnugleg andlit á djamminu í Hollywood í gamla daga „Nýr skemmtistaður, Hollywood, var opnaður i gærkvöldi með „grandeur" sem hæfir nafninu. Fullt var út að dyrum og margir urðu frá að hverfa.“ Þannig hófst frétt sem birtist á forsíðu Vísis þann 3. mars árið 1978. 4. júní 2023 09:12 Svona litu íslensk fangelsi út árið 1988 Árið 1988 voru fimm fangelsi starfrækt á Íslandi; Litla Hraun, Kvíabryggja, Hegningarhúsið, Síðumúlafangelsi og fangelsið á Akureyri. Bragi Þór Jósefsson ljósmyndari eyddi degi á Litla Hrauni og í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg og náði þar einstökum ljósmyndum sem sýna vistarverurnar í fangelsunum á þessum tíma. 28. maí 2023 10:02 Mannlífið í Reykjavík á níunda áratugnum: Þekkir þú fólkið á myndunum? Þröstur Ingólfur Víðisson frá Stöðvarfirði er áhugamaður um ljósmyndun. Hann eignaðist sína fyrstu alvöru myndavél um 1980 og hefur verið að taka myndir síðan. Mestan áhuga hefur hann á svart/hvítum mannlífsmyndum og götuljósmyndun, en hefur einnig tekið nokkuð af landslagsmyndum í lit síðustu árin. 21. maí 2023 09:01 Mest lesið Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV Bíó og sjónvarp Sonur Rögnu og Árna fæddur Lífið Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Lífið Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Bíó og sjónvarp Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lífið Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Lífið Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Lífið Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Sonur Rögnu og Árna fæddur Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Sjá meira
Kunnugleg andlit á djamminu í Hollywood í gamla daga „Nýr skemmtistaður, Hollywood, var opnaður i gærkvöldi með „grandeur" sem hæfir nafninu. Fullt var út að dyrum og margir urðu frá að hverfa.“ Þannig hófst frétt sem birtist á forsíðu Vísis þann 3. mars árið 1978. 4. júní 2023 09:12
Svona litu íslensk fangelsi út árið 1988 Árið 1988 voru fimm fangelsi starfrækt á Íslandi; Litla Hraun, Kvíabryggja, Hegningarhúsið, Síðumúlafangelsi og fangelsið á Akureyri. Bragi Þór Jósefsson ljósmyndari eyddi degi á Litla Hrauni og í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg og náði þar einstökum ljósmyndum sem sýna vistarverurnar í fangelsunum á þessum tíma. 28. maí 2023 10:02
Mannlífið í Reykjavík á níunda áratugnum: Þekkir þú fólkið á myndunum? Þröstur Ingólfur Víðisson frá Stöðvarfirði er áhugamaður um ljósmyndun. Hann eignaðist sína fyrstu alvöru myndavél um 1980 og hefur verið að taka myndir síðan. Mestan áhuga hefur hann á svart/hvítum mannlífsmyndum og götuljósmyndun, en hefur einnig tekið nokkuð af landslagsmyndum í lit síðustu árin. 21. maí 2023 09:01