Jöfnunarmark í uppbótartíma gæti reynst Everton dýrmætt Smári Jökull Jónsson skrifar 20. maí 2023 16:18 Leikmenn Everton fagna marki Yerri Mina. Vísir/Getty Yerri Mina tryggði Everton gríðarlega mikilvægt stig í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar þegar hann jafnaði metin í uppbótartíma gegn Wolves. Fulham og Crystal Palace gerðu einnig jafntefli í dag.
Everton er í bullandi fallbaráttu og mættu í dag Wolves á útivelli sem búið var að bjarga sér. Everton var aðeins einu stigi á undan Leeds í síðasta örugga sæti deildarinnar og tveimur stigum á undan Leicester en þau lið eiga leiki á morgun og mánudag. Það voru heimamenn í Wolves sem náðu forystunni í leiknum í dag. Hwang Hee-Chan skoraði á 34. mínútu og Everton komið í erfiða stöðu. Gestirnir frá Liverpoolborg reyndu hvað þeir gátu til að jafna metin í síðari hálfleik en gekk erfiðlega. Það var ekki fyrr en á tíundu mínútu uppbótartíma sem jöfnunarmarkið kom. Það gerði Yerri Mina og tryggði Everton þar með dýrmætt stig í fallbaráttunni. Everton á heimaleik gegn Bournemouth í síðustu umferðinni og þurfa nú að treysta á að Leeds og Leicester tapi stigum í sínum leikjum. Aleksander Mitrovic skorar hér annað mark Fulham í leiknum.Vísir/Getty Í Lundúnum mættust lið Fulham og Crystal Palace í nágrannaslag. Odsonne Edouard kom Crystal Palace yfir á 34. mínútu eftir sendingu Eberechi Eze en Aleksandar Mitrovic jafnaði úr vítaspyrnu í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Mitrovic kom Fulham síðan í forystu eftir stundarfjórðung í síðari hálfleik en hann skoraði þá með skalla eftir sendingu frá Brasilíumanninum Willian. Gestirnir gáfust þó ekki upp. Á 83.mínútu skoraði Joel Ward jöfnunarmarkið og tryggði Crystal Palace eitt stig. Lokatölur 2-2 en bæði lið sigla fremur lygnan sjó um miðja deild.
Enski boltinn Mest lesið Bastarður ráðinn til starfa Fótbolti Gary Martin aftur í ensku deildina Fótbolti Daði Berg: Eiginlega ekki við hæfi barna Fótbolti Furðu erfitt að mæta systur sinni Fótbolti „Ég hefði getað sett þrjú“ Íslenski boltinn Leik lokið: Víkingur - ÍA 2-1 | Víkingar tylltu sér á toppinn Íslenski boltinn Sunderland vann milljónaleikinn og komst upp í úrvalsdeildina Enski boltinn Stórleikur Martins dugði ekki til og Alba Berlin úr leik Körfubolti Bætti á sig átta kílóum, vann tvöfalt og er á leið út Handbolti Matic reyndist sannspár með söluna á McTominay Fótbolti Fleiri fréttir Sunderland vann milljónaleikinn og komst upp í úrvalsdeildina Salah bestur og Gravenberch besti ungi Forest bannaði Neville að mæta á völlinn Gæti hætt við að fara til Man Utd eftir tapið gegn Tottenham Klopp snýr aftur á Anfield Reka 200 manns eftir tapið fyrir Tottenham Fyrrverandi leikmaður Man. Utd hlaut fjórtán mánaða dóm Var ekki nógu ánægður með Trent Toney í enska hópnum en enginn úr Man. Utd Starf Amorims öruggt Höfnuðu í þriðja sæti en urðu samt meistarar Fernandes tilbúinn að fara ef United vill græða á honum Flestir vonast eftir sigri Spurs í kvöld Kona Calvert-Lewin varð fyrir barðinu á netníðingum Guardiola hótar að hætta „Manchester er heima“ Rómverjar vilja Nuno sem gæti verið ósáttur í Skírisskógi De Bruyne kvaddur með stæl Frimpong í læknisskoðun hjá Liverpool og Kerkez í launaviðræðum Beckham varar Manchester United við Hinselwood hetja Brighton gegn meisturunum Cunha að ganga í raðir Man United Hættir á BBC strax á sunnudaginn: „Ég geri mér grein fyrir uppnáminu sem ég olli“ Glæsimark Rice gulltryggði Arsenal Meistaradeildarsæti Draumaendir hjá Vardy í kveðjuleiknum Chelsea vann á Wembley og fullkomnaði þrennuna Stórkostleg stemning og sætur sigur í síðasta leiknum í Guttagarði Átti Henderson að fá rautt spjald? „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn Sjá meira