Sjáðu rauða spjaldið umdeilda í bikarúrslitaleik ÍBV og Vals Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 18. mars 2023 14:19 Marta Wawrzynkowska, markvörður ÍBV, fékk að líta beint rautt spjald í bikarúrslitaleik ÍBV og Vals. Marta Wawrzynkowska, markvörður ÍBV, fékk að líta beint rautt spjald í bikarúrslitaleik ÍBV og Vals sem nú fer fram í Laugardalshöllinni. Marta fór þá í andlit Theu Imani Sturludóttir í hraðaupphlaupi.
Þegar um tuttugu mínútur voru liðnar af leiknum höfðu Valskonur eins marks forystu í stöðunni 10-9. Eyjakonur stilltu upp í sókn, en Elín Rósa Magnúsdóttir stal boltanum, kom honum á Theu sem fór í gegn og skoraði. Marta Wawrzynkowska stóð í marki Eyjakvenna og hún sló í andlit Theu er hún freistaði þess að verja skotið. Að öllum líkindum óviljaverk og þá má einnig benda á að Thea var vissulega komin langt inn í vítateig. Dómarar leiksins, þeir Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson, fóru í VAR-skjáinn góða og eftir heldur stutta skoðun var ákvörðunin tekin. Rautt spjald á Mörtu og Eyjakonur þurfa því að reiða sig af án síns aðalmarkmanns það sem eftir lifir leiks. Atvikið má sjá hér fyrir neðan. Risastór og umdeild ákvörðun hjá dómurunum. ÍBV missir markmanninn út af með rautt fyrir þetta. Er þetta réttur dómur? pic.twitter.com/zMq5RkODca— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) March 18, 2023 Þegar þetta er ritað er hálfleikur í bikarúrslitaleik ÍBV og Vals og staðan er 14-13, Valskonum í vil. Eyjakonur eru því ekki af baki dottnar þó markvörður þeirra hafi verið sendur í snemmbúna sturtu.
Powerade-bikarinn ÍBV Valur Mest lesið Reykjavíkurmaraþonið í beinni á Vísi Sport Magnaður sigur Dags í Vestratreyju: „Núna er bara stefnan sett á ÓL“ Sport Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið Íslenski boltinn Elísa langfyrst fyrir Magnús Mána: „Þessi dagur er fyrir hann“ Sport „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Íslenski boltinn Sjáðu „fólkið frá þessum stað“ fagna í alvöru gæsahúðarmyndbandi Fótbolti Aurier í bann vegna lifrarbólgu Fótbolti Gat ekki skammað frænda því hann þurfti að fara upp á spítala Handbolti „Greenwood fékk annað tækifæri en ekki sonur minn“ Fótbolti „Það er æfing á morgun“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gat ekki skammað frænda því hann þurfti að fara upp á spítala Stjarnan er meistari meistaranna „Magnað að við séum enn að leita í vinskap hvors annars“ Með krabbamein í brjósti en hættir ekki að spila „Upplifi þetta mál sem fjölskylduharmleik“ Misstu Egypta fram úr sér í seinni hálfleik ÍBV segir tvær hliðar á málinu og óskar Kára velfarnaðar Unnu Ungverja og spila við heimamenn um fimmta sætið á HM Kári Kristján spilar aldrei aftur fyrir ÍBV Sárt tap gegn Dönum á HM Viktor Gísli fær treyju númer eitt hjá Barcelona Ævintýralegar lokasekúndur tryggðu Ísland í átta liða úrslit Slóvenskt undrabarn skoraði 23 mörk gegn Noregi Tap setur Ísland í erfiða stöðu Stelpurnar unnu Noreg á EM og tryggðu sér sautjánda sætið Strákarnir unnu Brassa og fóru áfram með fullt hús Leika um 17. sætið á EM eftir sigur á Austurríki Ágúst Elí leysir af Landin hjá besta liði landsins Leðurblökur að trufla handboltafélag Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Íslensku strákarnir byrjuðu HM á 22 marka sigri Þýsku meistararnir urðu að segja upp öllum leikmönnunum sínum Blær og félagar „niðurlægðir“ á undirbúningstímabilinu „Mikilvægt að fá nýjan og ferskan Blæ inn í þetta“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Holland fór illa með stelpurnar okkar í seinni hálfleik Íslensk landsliðskona skrifar um glímu sína við átröskun Stelpurnar fóru illa með færeyrsku frænkur sínar Sú markahæsta sett í bann því liðsfélagarnir neita að æfa með henni Ekkert spilað í þrjú ár eftir ítrekuð læknamistök Sjá meira