Lífsviðhorf í vöggugjöf Inga Straumland skrifar 18. júlí 2022 10:01 Í síðustu viku bárust þær fréttir úr Borgartúni 21 að í fyrsta skipti síðan Þjóðskrá hóf að halda utan um trúfélagsaðild Íslendinga, hafi hlutfall íbúa þessa lands sem skráð eru í Þjóðkirkjuna farið undir 60%. Sindri Geir Óskarsson, sóknarprestur í Glerárkirkju, sagðist litlar áhyggjur hafa á frjálsu falli meðlimafjöldans í haust, eiginlegt kjörfylgi Þjóðkirkjunnar væri um 60% og þar myndi meðlimafjöldinn staðnæmast. Hvort Sindri hafi rétt fyrir sér verður tíminn að leiða í ljós, en persónulega finnst mér raunar ólíklegt að svona hátt hlutfall trúi raunverulega á sköpunarsöguna og kraftaverk, eða séu yfir höfuð meðvituð um aðild sína að Þjóðkirkjunni. Áhugamálin sem erfast ekki alltaf Þegar ég var nýfætt kríli, sem hafði nýhrist af sér allar snúrurnar í hitakassanum og tekist á við guluna, komu tvær ungar konur heim til mín og nýbakaðra foreldra minna, með skírteini upp á lífstíðaraðild að Ungmennafélagi Bessastaðahrepps, sem faðir minn hafði verið virkur í um árabil. Og rétt eins og fjögurra ára sonur minn hefur aðallega áhuga á bílum og vinnuvélum, þó móðir hans sé stjórnarmeðlimur í Samtökum um bíllausan lífsstíl, þá kom kannski fljótlega í ljós að ég yrði varla afreksíþróttakona eða neins konar forkólfur í ungmennafélagsstarfi. Eina keppnisgreinin sem ég gæti mögulega skarað fram úr í, væri skapandi borðskreytingar, sem raunar var keppnisgrein á landsmótum UMFÍ um áratugabil. Vöggugjöfin sem entist ekki En ungmennafélagsaðildin var ekki eina félagsaðildin sem ég fékk í vöggugjöf. Líkt og stór hluti þjóðarinnar var ég umsvifalaust skráð í það trúfélag sem móðir mín tilheyrði, án þess að foreldrar mínir gæfu nokkurn tíman heimild til þess. Og rétt eins og með ungmennafélagsandann, sem aldrei helltist yfir mig, skipti ég út kennisetningum kristninar á kynþroskanum, fyrir kennisetningarnar í örlítið nútímalegri skáldsögu en þeirri sem kristin trú byggir á; Harry Potter. Ég hef síðan þá reyndar slaufað þeim bókaflokki alveg jafnharkalega og testamentunum, enda hef ég enga þolinmæði fyrir hinseginfóbíu af nokkru tagi. Skoðanamótandi formæður Það er nefnilega þannig að af þeim 228.298 íbúum þessa lands sem tilheyra enn Þjóðkirkjunni, fékk stór hluti þeirra aðildina í vöggugjöf. Þó að reglurnar hafi breyst, og nú þurfi bæði foreldri að vera skráð í sama lífsskoðunarfélagið, veraldlegt eða trúarlegt, til þess að barn sé skráð í téð félag en ekki utan trúfélaga, þá byggjast þær ennþá á þeirri forsendu að það sé í lagi að ríkið ákveði félagsaðild barns, án þess að spyrja foreldrana eða jafnvel barnið sjálft. Þannig hefur stærsta félagið, sem hefur lengstu söguna og langmestu forréttindin, kerfisbundið fengið til sín sóknarbörn á grundvelli trúfélags formæðra þeirra. Og fjöldi meðlima skiptir nefnilega gríðarlegu máli fyrir félögin, því á þeim byggjast upphæðir þeirra sóknargjalda sem ríkið ráðstafar úr vasa skattgreiðanda og til lífsskoðunarfélaganna. Erum við öll á réttum stað? Þær upphæðir sem trú- og lífsskoðunarfélögin fá fyrir hvert og eitt sóknarbarn á sínum lista, hlaupa á milljónum fyrir mörg félög, en milljörðum fyrir eitt þeirra: Þjóðkirkjuna. Ríkið greiðir 1.107 krónur á mánuði á hvern einstakling frá 16 ára aldri, í hverju félagi fyrir sig. Fyrir öll þessi sóknarbörn, sem mörg hafa verið skráð sjálfkrafa í Þjóðkirkjuna við fæðingu, fær ríkistrúfélagið því um tvo og hálfan milljarð í stuðning frá ríkinu. Einstaklingar eru aldrei beðnir um að staðfesta vilja sinn til að tilheyra einu trúfélagi frekar en öðru—eða bara einhverju þeirra yfir höfuð—og því er ómögulegt að segja hvort öll þau sem tilheyra aldagömlum félögum vilji endilega vera í akkúrat því trúfélagi. Þá hlýtur það að teljast í meira lagi óeðlilegt, og tæplega í takt við nútímakröfur um persónuvernd þar sem upplýst samþykki er meginstefið, að hvítvoðungar séu skráðir í félög að þeim eða foreldrum þeirra forspurðum. Núllstillum trúfélagsskráningu Það væri því langsamlega sanngjarnast fyrir okkur öll, sem viljum réttláta úthlutun fjár úr sameiginlegum sjóðum þjóðarinnar og aðhyllumst raunverulegt trúfrelsi, að núllstilla einfaldlega trúfélagsskráningu þjóðarinnar hjá Þjóðskrá. Væri núllstillingin kynnt vel, gæti fólk svo umsvifalaust skráð sig aftur í það félag sem það vill helst tilheyra, enda tekur það ekki nema örfáar mínútur á skra.is. Með uppfærslunni gætum við verið alveg viss um að sóknargjöldin séu að rata á réttan stað og gætum svo í kjölfarið skoðað það að leiðrétta óréttlæti á borð við trúfélagsskráningu ómálga barna, ákvæði um eina ríkistrú og auðvitað sjálft kirkjujarðasamkomulagið, óhagstæðasta samning Íslandssögunnar. Því ef við trúum því raunverulega að hver einasti meðlimur hvers einasta trúfélags sé þar af fúsum og frjálsum vilja, þá rata lömbin væntanlega strax aftur heim. Höfundur er formaður Siðmenntar, alls engin íþróttakona og fyrrverandi Harry Potternörd. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Trúmál Þjóðkirkjan Inga Auðbjörg K. Straumland Mest lesið Kemur þín háskólagráða úr kornflakes pakka? Davíð Már Sigurðsson Skoðun Nei, það verður ekki að vera Ísrael, það er Ísrael Einar Ólafsson Skoðun Púslið sem passar ekki Ingibjörg Isaksen Skoðun Hinn óseðjandi Eiríkur Ólafsson Skoðun Íslenski fáninn fyrir samstöðu ekki mismunun Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Þér er boðið með, kæri félagi Trausti Breiðfjörð Magnússon Skoðun Ef þið þurfið að segja upphátt að þið séuð ekki rasistar... Nichole Leigh Mosty Skoðun Jafnlaunabarnið og baðvatnið Helga Sigrún Harðardóttir Skoðun Á að leyfa eða halda áfram að banna? Sigurður G. Guðjónsson Skoðun Þéttari byggð: Hver nýtur ábatans — og hver borgar brúsann? Daði Freyr Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Ákall Valdimar Júlíusson skrifar Skoðun Á að leyfa eða halda áfram að banna? Sigurður G. Guðjónsson skrifar Skoðun Íslenski fáninn fyrir samstöðu ekki mismunun Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Jafnlaunabarnið og baðvatnið Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Þér er boðið með, kæri félagi Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar Skoðun Púslið sem passar ekki Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Nei, það verður ekki að vera Ísrael, það er Ísrael Einar Ólafsson skrifar Skoðun Kemur þín háskólagráða úr kornflakes pakka? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hinn óseðjandi Eiríkur Ólafsson skrifar Skoðun Þéttari byggð: Hver nýtur ábatans — og hver borgar brúsann? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Það ætti ekki vera í boði að útskifa fólk úr viðtalstímum hjá geðlæknum Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Ef þið þurfið að segja upphátt að þið séuð ekki rasistar... Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Hugleiðingar og skoðanaskipti um rasisma og útlendingahatur Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun 56.000 krónur í vasa Kópavogsbúa Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun NordAN: Vegið að norrænni forvarnarstefnu Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Af hverju byggjum við innan gróinna hverfa? Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Gigt, vinnumarkaðurinn, fjölgun hlutastarfa og viðeigandi aðlögun Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Er stríðsglæpamaður í rútunni? Ragnhildur Hólmgeirsdóttir, Hrönn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju með sjómannadaginn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Er ekki tími til kominn að tengja? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Barnasáttmáli fyrir öll börn Guðný Björk Eydal,Paola Cardenas skrifar Skoðun Ójafnvægið sem heimurinn býr við – og skellur á Bakka Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bensínstöðvardíll og Birkimelur Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Trollveiðar og veiðiráðgjöf Magnús Jónsson skrifar Skoðun Gríðarlegir hagsmunir í húfi Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Skynsamleg forgangsröðun fjár Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Eins skýrt og það verður Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Tjáningarfrelsi, gagnrýni og Snorri Másson Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Að sameinast fjölskyldu sinni Guðrún Brynjólfsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Það ætti ekki vera í boði að útskifa fólk úr viðtalstímum hjá geðlæknum Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Gigt, vinnumarkaðurinn, fjölgun hlutastarfa og viðeigandi aðlögun Hrönn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir skrifar