„Hvernig ætlar Öryggisráðið að refsa Rússum þegar Rússarnir sjálfir hafa neitunarvald?“ Smári Jökull Jónsson skrifar 1. maí 2022 12:04 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var gestur á Sprengisandi í morgun. Vísir/Vilhelm Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að það skorti pólitíska forystu innan alþjóðasamtaka heimsins. Hún segir að efnahagsþvinganir gegn Rússum þurfi að vera harðari.
Ingibjörg Sólrún var gestur Kristjáns Kristjánssonar á Sprengisandi í dag en hún hélt á dögunum erindi á ráðstefnu Alþjóðastofnunar Háskóla Íslands um öryggisskipan í Evrópu í ljósi Úkraínustríðsins. Ingibjörg Sólrún hefur starfað innan alþjóðastofnana síðustu árin og meðal annars sem forstjóri Lýðræðis- og mannréttindastofnunar Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE). Hún hætti störfum eftir að Tyrkir og Tadsíkistar beittu neitunarvaldi gegn endurráðningu hennar. Þau Kristján og Ingibjörg ræddu meðal annars um það frjálslynda lýðræðisskipulag sem varð til eftir seinni heimsstyrjöld og svo með afgerandi hætti eftir fall Sovétríkjanna. Hún segir að ýmsir hafi haldið að þá væri komið á endanlegt heimsskipulag. „Það hefur ekki reynst raunin og ég held að menn hafi ofmetið að þetta skipulag væri stutt um allan heim. Ég hef sjálf kynnst því, til dæmis í Írak, þar sem menn reyndu að þvinga þessu skipulagi upp á þjóðina. Það er langur vegur frá því að þetta sé almennt skilið og stutt,“ sagði Ingibjörg Sólrún og bætti við að hún teldi skipulagið hafa fært almenningi öllum miklar réttarbætur og velsæld. Segir alþjóðasamfélagið vera máttlaust Hún segir að orðið hafi mikið fráhvarf á síðustu tíu árum hvað hugmyndafræðina varðar. „Í stað þess að styðja hið frjálslynda lýðræði höfum við séð ýmsa koma upp í ríkjum sem eru aðilar að ÖSE þar sem ráðamenn hafa beinlínis tekið afstöðu gegn hinu frjálslynda lýðræði og sagt að þeir styðji það ekki.“ „Þeir aðhyllast að hafa kosningar en síðan er allur gangur á því hvernig þessar kosningar eru. Þeir telja sig vera kosna, þeir telja sig hafa umboð og þegar þú ert kominn með umboðið þá er þetta eins og ABBA sagði, „The winner takes it all“. Ég ræð, ég var kosinn og ég stjórna. Við sjáum þetta auðvitað hjá Pútín, Orban í Ungverjalandi og Erdogan í Tyrklandi. Allt eru þetta aðildarríki ÖSE.“ Ingibjörg Sólrún segir að skipulagið innan Sameinuðu þjóðanna, þar sem Rússar hafa neitunarvald innan Öryggisráðsins, vera úrelt og gangi ekki upp.Vísir/AP „Þeir hafa allir vegið að frjálsri fjölmiðlun og stjórna upplýsingaflæðinu og skoðanamyndun í sínum ríkjum.“ Ingibjörgu Sólrúnu finnst vanta pólitíska forystu þar sem forystumenn aðildarríkjana raunverulega taka forystu og taka ábyrgðina á því að reyna að snúa þessari þróun við. „Það hefur verið ákveðinn sofandaháttur á alþjóðavísu og líka innan Sameinuðu þjóðanna. Það er stofnun sem verður til í stofnun seinna stríðs. Pólítíska stoðin innan SÞ byggir enn á hugmyndum frá 1945 og þetta er algjörlega úreltur strúktur þar sem fimm ríki sem hafa neitunarvald innan öryggisráðsins ráða lögum og lofum.“ Hún segir þetta sjást greinilega í tengslum við stríðið í Úkraínu. „Hvernig ætlar öryggisráðið að refsa Rússunum með Rússana sjálfa með neitunarvald? Þetta gengur auðvitað ekki upp.“ Verður að vera talsamband Ingibjörg Sólrún segir að hún geti útaf fyrir sig skilið þá sem eru hræddir við að gera eitthvað sem gæti enn frekar ýtt undir hernaðarumsvif Rússa. „Á móti kemur að það verður að stoppa þá af, það verður að stoppa þá af í Úkraínu. Það er þar sem þetta verður að gerast. Ef þessi átök í Úkraínu dragast á langinn þá mun það hafa mjög alvarlegar afleiðingar, fyrir Úkraínu en ekki síst fyrir Evrópu og raun heiminn allann. Það má ekki gerast að þetta dragist á langinn.“ Hún segir mikilvægt að talsamband með sé á milli stríðandi fylkinga. „Þetta verður sífellt erfiðara eftir því sem Rússarnir ganga fram af meiri hrottaskap og meiri illsku. Það er verið að drepa saklausa borgara og það er verið að nauðga konum. Hvernig í veröldinni ætlar Selenskí að semja við einhvern sem kemur fram með þessum hætti.“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að erfitt sé fyrir Selenskí að semja við Rússa miðað við hvernig þeir hafa komið fram. Hún segir þó mikilvægt að halda uppi talsambandi.Vísir/AP Ingibjörg Sólrún segir að á endanum verði þessu stríði að ljúka og einhvers konar samningar að eiga sér stað. „Nema menn hafi þetta sem stríð sem dregst á langinn sem hefði hræðilegar afleiðingar, að það myndi malla áfram með Rússa sem mögulega árásaraðila á íbúa í landinu.“ Hún vill að gengið verði harðar fram með efnahagsþvinganir. „Þolinmæðin er svo lítil hjá Vesturlandabúum. Pútín getur haldið áfram lengi og haldið sínu fólki við efni. Á Vesturlöndum mun það reynast þrautin þyngri að halda stuðningnum vakandi. Þar reynir mikið á forystu aðildarríkja NATO, hvort þeir geti fengið fólkið að halda stuðningi vakandi.“ „Ég tala nú ekki um ef gripið er til harðari aðgerða eins og að loka fyrir gasið frá Rússlandi sem þarf að gerast. Það hefur miklar efnahagslegar afleiðnigar fyrir alemnning í þessum löndum og þá verða menn að stíga fram og gerast raunverulegir leiðtogar og ná þessum stuðningi.“ Engin ástæða til að gefa Rússum afslátt Ingibjörg Sólrún segir að sú staðreynd að Rússar hafi gert pólitískt bindandi samninga, um að virða landamæri og að blanda sér ekki í innri mál ríkja annarra aðildaþjóða í alþjóðastofnunum, geri það að verkum að erfitt sé að semja við þá. „Síðan er það ekki pappírsins virði sem þeir skrifa á. 1975 gera þeir samning um að virða landamærin eftir seinna stríð og virða sjálfstæði og fullveldi. Árið 1994, þegar Úkraínumenn gefa frá sér kjarnavopnin gefa Rússar öryggisskuldbindingu fyrir Úkraínu að þeir muni virða landamæri og fullveldi þess og sjálfstæði. Ekkert af þessu er síðan virt.“ Hún segir enga ástæðu til að gefa Rússum neinn afslátt. „Þeir hafa allar forsendur til að virða þær skuldbindingar sem þeir hafa gefið. Þeir eru engir aukvisar og þeir eru aðilar að SÞ og ÖSE og það er engin ástæða til að gefa afslátt þegar kemur að svona ríki.“ „Hjá Rússum hefur þetta verið meira í orði en borði.“
Innrás Rússa í Úkraínu Sameinuðu þjóðirnar Sprengisandur Mest lesið Grunaður hraðbankaþjófur nennti ekki með austur nóttina örlagaríku Innlent Mannskæð skotárás í skóla í Bandaríkjunum Erlent Glímdi við veikindi fyrir andlátið sem breyttu persónuleika hans Innlent Ekki séð neitt þessu líkt á sínum fjörutíu ára ferli Innlent Til skoðunar að flytja Sjálfstæðisflokkinn úr Valhöll Innlent Stefna Open AI vegna sjálfsvígs sonarins Erlent Supu hveljur á fundi með ráðherra á Egilsstöðum Innlent Er við góða líkamlega heilsu en heilinn að „bregðast honum“ Erlent Raðsundlaugarkúkari gengur laus í Oulu Erlent Gátu ekki opnað hraðbankann þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Innlent Fleiri fréttir Hafna „órökstuddum fullyrðingum“ Sigurðar Inga Þyrlan kölluð út vegna slasaðs manns í Gemludal Menningarráðherra skipaði son heilbrigðisráðherra í formannsstörf Vara við svikapóstum í þeirra nafni Bylting framundan en Landspítalinn þurfi að hlaupa hraðar Faðir plokksins kenndi ráðherra að plokka Gátu ekki opnað hraðbankann þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Kári Stefánsson í beinni, erfiður hraðbanki og Dönum ekki skemmt Óttuðust um ferðamenn sem sátu fastir í Markarfljóti Glímdi við veikindi fyrir andlátið sem breyttu persónuleika hans Hraðbankaþjófur játar sök Framlengja gæsluvarðhald yfir leiðbeinandanum um fjórar vikur Supu hveljur á fundi með ráðherra á Egilsstöðum Grunaður hraðbankaþjófur nennti ekki með austur nóttina örlagaríku Með mikla áverka og mjög kaldur þegar hann fannst Móðirin áfram í haldi og húsleit á Írlandi Til skoðunar að flytja Sjálfstæðisflokkinn úr Valhöll Losun Íslands jókst á öllum sviðum og langt í land með skuldbindingar Bylting í heilbrigðisþjónustu og áróður Bandaríkjamanna Vilja halda leiðbeinandanum áfram bak við lás og slá Kynna drög að nýrri stefnu í heilbrigðismálum Ekki séð neitt þessu líkt á sínum fjörutíu ára ferli Innbrot og slagsmál í miðborginni Segir dóminn áfellisdóm yfir seinagangi lögreglu í kynferðisbrotamálum Málafjöldi tvöfaldast milli ára: „Hálfur milljarður farinn nú þegar“ Heilbrigðisráðuneytið færir sig um set Enginn vilji taka ábyrgð á því hvenær eigi að loka Reynisfjöru Minntust þess ekki að hafa brennt tösku fyrir Stefán Blackburn Sakar eftirlitsaðila um að framfylgja ekki leigubílalögum Játaði Hamraborgarmálið, grunaður í hraðbankamálinu og vitni í Gufunesmálinu Sjá meira