Oddvitaáskorunin: Klifraði upp á koparljónið á Trafalgar-torgi Samúel Karl Ólason skrifar 14. september 2021 09:00 Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2021 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum.
Vilborg Kristjánsdóttir leiðir lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður í kosningunum. „Ég heiti Vilborg Þóranna Bergmann Kristjánsdóttir og er lögfræðingur og sáttamiðlari. Ég er sérfræðingur í réttindum barna og mín sérfhæfing liggur í fjölskyldurétti. Það gefur því augaleið að málefni fjölskyldna og barna eru mér hugleikin. Ásamt því að innleiðing sáttamiðlunar í íslenskt réttarkerfi er mikið baráttumál hjá mér. Ég brenn fyrir réttindum barna og ungmenna og betra samfélagi. Tjáningafrelsið er einnig mikið baráttumál hjá mér. Ég á dóttur sem heitir Þóranna Bjartey og tengdason sem heitir Sigurjón Emil.“ „Þið ykkar sem viljið vita meira um mig þá er ég með facebook síðu þar sem ég set allt um það sem ég er að gera og fyrir hvað ég stend. Endilega sendið mér vinabeiðni 😊 Að lokum hvet ég alla til að kynna sér kosningastefnu Miðflokksins 2021 – 10 ný réttindi fyrir íslensku þjóðina. Við gerum það sem við segjumst ætla að gera.“ Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi? Vestmannaeyjar. Hvað færðu þér í bragðaref? Íslensk jarðarber, íslensk bláber og Góu brak. Uppáhalds bók? Allra besta gjöfin eftir Jim Stovall. Uppáhalds „guilty pleasure“ lag? (skammast þín smá fyrir að hafa gaman af því – sakbitin sæla) You Don´t Own Me – með Bette Midler, Goldie Hawn & Diane Keaton úr The First Wives Club. Hvar á Íslandi myndir þú helst vilja búa? (Ekki í þínu kjördæmi) Í Vestmannaeyjum – besti staður í heimi. Dundaðir þú þér við eitthvað á tímum Covid og samkomutakmarkana? Hámhorf eða nýtt áhugamál, sem dæmi. Ég ákvað að endurnýja kynni mín við Matlock. Hvað tekur þú í bekk? Haha...örugglega núll 😊 Burstar þú tennurnar fyrir eða eftir morgunmat? Ég er alveg svakaleg með tannburstann, ég bursta tennurnar fyrir og eftir morgunmat. Draumastarfið? (Fyrir utan þingsetu) Umboðsmaður barna og Umboðsmaður Alþingis. Hvað myndir þú segja við Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, ef þú myndir hitta hann í einrúmi? Ég held ég haldi því bara fyrir mig. Uppáhalds tónlistarmaður? Ég get ekki gert upp á milli Damien Rice og GDRN. Svo held ég reyndar mjög mikið upp á vinkonur mínar þær Þórunni Elfu Stefánsdóttur og Margréti Einarsdóttur óperusöngkonur. Besti fimmaurabrandarinn? Af hverju eru Reynir og Danni orðnir svona litlir? Þeir skruppu saman í bíó. Ein sterkasta minningin úr æsku? Þegar ég fór með pabba og bræðrum mínum upp á Heimaklett þegar ég var lítil og líka allar þær fallegu minningar sem ég á með ömmu Vilborgu en hún lést þegar ég var sex ára. Hver er fyrirmynd þín í pólitík? Pabbi minn er mín fyrirmynd í pólitík og svo er mamma mín fyrirmynd þegar kemur að kvennabaráttunni. Besta íslenska Eurovision-lagið? Er það ekki bara þetta klassíska? Nína. Besta frí sem þú hefur farið í? Hér er af mörgu að taka og á ég því mjög erfitt með að velja en það stendur klárlega upp úr þegar við dóttir mín létum gamlan draum minn rætast, fórum á flakk um Bretland og þræddum alla staði sem tengjast lífi Agöthu Christie. Eins stendur upp úr þegar ég fór til Afríku sex ára gömul með foreldrum mínum og bræðrum. Uppáhalds þynnkumatur? Grænmetissúpan/orkusúpan hans pabba en hún inniheldur fullt af íslensku grænmeti. Hve oft hefur þú farið að sjá eldgosið? Ég er ekki enn búin að fara að sjá eldgosið en ég fór og sá gosið í Eyjafjallajökli. Uppáhalds Fóstbræðraatriði? Indriði. Uppáhalds uppátækið frá framhaldsskólaárunum? Það eina sem mér dettur í hug er þegar ég klifraði upp á koparljónið á Trafalgar Square með lífið í lúkunum þar sem ég óttaðist að lögreglan kæmi og nappaði mig. Rómantískasta uppátækið? Ég á erfitt með að svara þessari þar sem ég held að ég sé ekki mjög rómantísk. Ein saga stendur upp úr en ég á ekki heiðurinn af rómantíkinni í þeirri sögu. Þegar ég var í menntaskóla hitti ég sætan strák á þjóðhátið, þegar við komum heim til Reykjavíkur hafði hann fyrir því að leita mig uppi í gegnum símaskrá skólana. Pilturinn náði loks á réttu Vilborgu í þriðju tilraun minnir mig og bauð mér á stefnumót.
Oddvitaáskorunin Alþingiskosningar 2021 Reykjavíkurkjördæmi norður Miðflokkurinn Mest lesið Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Lífið Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Gagnrýni Gömlu trixin úreld: Ekki pína í börn mat, múta, hóta eða uppnefna Áskorun Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Gagnrýni Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Lífið Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Lífið Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu Lífið Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Lífið Fleiri fréttir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn „Myndi gjarnan vilja að barnið mitt færi líka í heimsókn í mosku“ Sjá meira