Segja að Liverpool vilja fá Luis Suarez aftur til félagsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. mars 2021 08:00 Luis Suarez fagnar hér einu af mörkum sínum fyrir Liverpool en þetta kom í leik á móti Everton. EPA/PETER POWELL Luis Suarez var besti leikmaður Liverpool í nokkur ár áður en félagið seldi hann til Barcelona. Nú er Úrúgvæmaðurinn orðaður við sitt gamla félag.
Luis Suarez hefur staðið sig frábærlega með Atletico Madrid á þessu tímabili en honum var óvænt sparkað út hjá Barcelona síðasta haust. Atletico Madrid star Luis Suarez has been linked with a shock return to Liverpool.Full story https://t.co/1m2hliLk2M pic.twitter.com/hihIMk1FJF— Kick Off (@KickOffMagazine) March 25, 2021 Hinn 34 ára gamli framherji var ekki inn í myndinni hjá Ronald Koeman, þá nýjum þjálfara Barcelona, en hefur sýnt Börsungum hverju þeir misstu af. Suarez er með 19 mörk í 25 leikjum á tímabilinu með Atletico Madrid. Samkvæmt frétt Fichajes.net, sem Four Four Two slær upp, þá er Úrúgvæmaðurinn inn í myndinni hjá Jürgen Klopp, sem er að leita að framherja ef Liverpool selur sinn markahæsta leikmann. Klopp vill fá reynslumikinn framherja og það væri ekki verra ef viðkomandi þekkir vel til á Anfield. Liverpool are interesting in bringing back Luis Suarez, according to Fichajes pic.twitter.com/pWkoP9Vb2x— Goal (@goal) March 25, 2021 Mo Salah gæti nefnilega farið í sumar en Barcelona, Real Madrid og Paris Saint-Germain er sögð vera á eftir Egyptanum. Roberto Firmino og Sadio Mane hafa heldur ekki verið á skotskónum. Liverpool keypti Diogo Jota síðasta haust en hann missti mikið úr vegna meiðsla. Liverpool liðinu hefur þannig mistekist að skora í átta af síðustu fjórtán deildarleikjum sínum. Luis Suarez lék með Liverpool frá 2011 til 2014 en hann skoraði 82 mörk í 133 leikjum með félaginu. Besta tímabilið hans var 2013-14 tímabilið þegar hann skoraði 31 mörk í 33 deildarleikjum og Liverpool var hársbreidd frá því að vinna ensku deildina.
Enski boltinn Mest lesið Má ekki koma inn í íþróttahús í tíu mánuði Körfubolti Hulda Elma vann Hengil Ultra á brautarmeti Sport Segir að eitrað hafi verið fyrir leikmönnum liðsins Fótbolti Snýr aftur til Íslands betri en nokkru sinni áður Körfubolti Taiwo Badmus staðfestur hjá Stólunum: „Ég er kominn heim“ Körfubolti „Vandræðalegt að fá krampa í bæði læri eftir sextíu mínútur“ Fótbolti „Þakklátur fyrir að konan sé tilbúin að leyfa mér að upplifa þetta“ Körfubolti Anníe Mist kynnir bók sem tók fjögur ár að skrifa: Bæði stressuð og spennt Sport Tvíburasystir vonarstjörnu lést Sport Fyrrum Arsenal leikmaður í fjögurra ára fangelsi: „Þú hentir öllu frá þér“ Sport Fleiri fréttir Liverpool hækkar tilboð sitt Man. United gat ekki neitt en græddi samt meiri pening Leikmenn Tottenham sagðir öskuillir og í uppreisnarhug eftir brottrekstur Ange Rekinn frá Tottenham Segir nýja Brassann hjá Chelsea geta orðið eins góður og Lamine Yamal Dómari í enska boltanum segist hata VAR Liverpool byrjar undirbúningstímabilið á móti Stefáni Teiti Hættur eftir að hafa spilað með 42 liðum Kerkez spilar ekki með Ungverjum: Sagður á leið til Liverpool að skrifa undir Liverpool hafnaði tilboði Barcelona Sonur Bruno Fernandes mætti á æfingu hjá FH Stjörnur Chelsea spiluðu saman í unglingaliði City Mbuemo fer fram á fimmfalt hærri laun Rio Ferdinand: Ég er skotskífa vegna gengis Man United Írskur smáklúbbur græðir meira en hálfan milljarð þökk sé Liverpool Brady byggir nýjan leikvang fyrir Willum og Alfons Margir leikmenn á förum frá Arsenal Segist ekki vilja taka tíuna hjá Liverpool af Mac Allister City búið að semja um kaupverð á Reijnders Enska landsliðið æfir í upphituðum tjöldum til að undirbúa sig fyrir HM Sancho samdi ekki við Chelsea sem þarf að borga sekt Bruno ætlar ekki að sækja seðlana í Sádi-Arabíu Mbuemo sagður vilja fara til Manchester United Hóta Abramovich lögsókn og vilja láta Úkraínu fá Chelsea peninginn Leikmenn ensku stórliðanna kvarta við leikmannasamtökin Gætu hent Crystal Palace út úr Evrópudeildinni Man. City vill fá bakvörð frá Úlfunum Beckham óánægður með hegðun leikmanna Manchester United Hákon mun slást við Kelleher um stöðuna Rauðu djöflarnir staðfesta kaup á Cunha Sjá meira