Sharp hetja Sheffield | Brighton jafnaði í lokin Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 18. október 2020 14:59 Billy Sharp tryggði Sheffield United fyrsta stig tímabilsins, líkt og í fyrra. Gareth Copley/Getty Images
Tveimur leikjum er nú lokið í enska boltanum. Billy Sharp tryggði Sheffield United sitt fyrsta stig. Óvænt hetja Brighton tryggði þeim svo stig gegn Crystal Palace. Fyrsti leikur dagsins var leikur Sheffield United og Fulham. Bæði lið voru án stiga fyrir leikinn og mikið undir. Nýliðar Fulham voru mikið betri aðilinn í dag. Eftir markalausan fyrri hálfleik fékk Aleksandar Mitrovic gullið tækifæri til að koma gestunum yfir á 57. mínútu en vítaspyrna hans fór forgörðum. Tuttugu mínútum síðar kom Ademola Lookman gestunum yfir með frábæru marki. Þegar fimm mínútur voru eftir fengu heimamenn vítaspyrnu. Billy Sarp – herra Sheffield – fór á punktinn og skoraði af öryggi. Lokatölur í Stálborginni því 1-1 og verður að segjast að það gerir lítið sem ekki neitt fyrir bæði lið. Leik Crystal Palace og Brighton & Hove Albion lauk einnig með jafntefli. Wilfred Zaha kom Palace yfir með marki úr vítaspyrnu á 19. mínútu. Þegar var komið fram í uppbótartíma jafnaði Alexis Mac Allister metin fyrir gestina. Lewis Dunk nældi sér í rautt spjald skömmu síðar en tíu Brighton menn héldu út og náðu í mikilvægt stig. Eitthvað hefur leikurinn tafist við þetta en uppbótartíminn var rúmar tíu mínútur. Sheffield eru nú í 17. sæti eftir fimm leiki með eitt stig. Fulham er í 19. sæti, einnig með eitt stig Brighton er því 16. með fjögur og Palace í 12. með sjö stig.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Íslenskur doktorsnemi Englandsmeistari: Rannsakar prótín og skorar af línunni í Oxford Sport Bastarður ráðinn til starfa Fótbolti Elsti leikmaðurinn til að fá MVP atkvæði Körfubolti Ísak Bergmann hljóp mest allra Fótbolti Gary Martin aftur í ensku deildina Fótbolti Furðu erfitt að mæta systur sinni Fótbolti Dagskráin í dag: Íslenski boltinn og sitthvað fleira Sport Daði Berg: Eiginlega ekki við hæfi barna Fótbolti „Ég hefði getað sett þrjú“ Íslenski boltinn Úlfarnir bitu frá sér og unnu 42 stiga sigur Körfubolti Fleiri fréttir Sunderland vann milljónaleikinn og komst upp í úrvalsdeildina Salah bestur og Gravenberch besti ungi Forest bannaði Neville að mæta á völlinn Gæti hætt við að fara til Man Utd eftir tapið gegn Tottenham Klopp snýr aftur á Anfield Reka 200 manns eftir tapið fyrir Tottenham Fyrrverandi leikmaður Man. Utd hlaut fjórtán mánaða dóm Var ekki nógu ánægður með Trent Toney í enska hópnum en enginn úr Man. Utd Starf Amorims öruggt Höfnuðu í þriðja sæti en urðu samt meistarar Fernandes tilbúinn að fara ef United vill græða á honum Flestir vonast eftir sigri Spurs í kvöld Kona Calvert-Lewin varð fyrir barðinu á netníðingum Guardiola hótar að hætta „Manchester er heima“ Rómverjar vilja Nuno sem gæti verið ósáttur í Skírisskógi De Bruyne kvaddur með stæl Frimpong í læknisskoðun hjá Liverpool og Kerkez í launaviðræðum Beckham varar Manchester United við Hinselwood hetja Brighton gegn meisturunum Cunha að ganga í raðir Man United Hættir á BBC strax á sunnudaginn: „Ég geri mér grein fyrir uppnáminu sem ég olli“ Glæsimark Rice gulltryggði Arsenal Meistaradeildarsæti Draumaendir hjá Vardy í kveðjuleiknum Chelsea vann á Wembley og fullkomnaði þrennuna Stórkostleg stemning og sætur sigur í síðasta leiknum í Guttagarði Átti Henderson að fá rautt spjald? „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn Sjá meira