Uppbygging atvinnulífs á landsbyggðinni Bragi Þór Thoroddsen skrifar 11. mars 2020 12:31 Árið 2014 var ákveðið að leggja í uppbyggingu kalkþörungaverksmiðju í Álftafirði í samstarfi við fyrirtækið Marigot Group – móðurfélag Celtic Sea – Íslenska kalkþörungafélagið. Skrifað var undir viljayfirlýsingu sem dagsett er 21. nóvember 2014. Vinna við undirbúning var hafin talsvert fyrr. Áformað var samkvæmt yfirlýsingunni að hefja rekstur árið 2018. Fyrirtækið á og rekur verksmiðju á Bíldudal. Þrátt fyrir skiptar skoðanir um ágæti „stóriðju“ á Vestfjörðum virðist hafa ríkt nokkuð góð og almenn sátt um rekstur slíkrar iðju. Greinin er háð raforku og aðgengi að botnlægum kalkþörungi sem breytt er í hráefni eða fullunnið sem bætiefni og tillag í framleiðslu á matvælum. Hér voru og eru flestir jákvæðir í garð slíkrar nýungar í atvinnulíf sem er fábreytt hér að mestu. Verksmiðja myndi veita hér um 30 störf, plús mínus eftir því hversu mikið yrði keyrt í rekstri. Orkunotkun um 8MW og allur rekstur og umsvif myndu bæta hér atvinnulíf til muna og færa líf í þorpið við Álftafjörð. Síðan hafa liðið nokkur ár og nokkrar milljónir farið í verkið, margir vinnufundir og mikil vinna að baki. Aðal- og deiliskipulag Súðavíkurhrepps, fundir nefnda og sveitarstjórnar, opnar umræður og hvaðeina. Öll skipulagsvinna og undirbúningur í opnu ferli þar sem allir sem telja sig hafa hagsmuna að gæta geta gert athugasemdir og haft þar áhrif. Allt endurskoðað reglum samkvæmt með þeim gleraugum að valda sem minnstu tjóni á umhverfi eða ásýnd sveitarfélagsins og næsta ósnertri náttúru. Afraksturinn sendur grandskoðaður og rýndur, yfirfarinn og staðfestur, undirritaður í nokkrum eintökum - sent skipulagsyfirvöldum. Á landsbyggðinni er það þekkt að tíminn er á öðrum hraða en í ys og þys stærstu þéttbýliskjarna. Þeir sem byggja stór-höfuðborgarsvæðið telja sig jafnan vera í hringiðunni og þar með miklu hraða allra hluta. Ég er ekkert að vega að fólki þar – hef búið þar síðustu 20 árin og veit muninn. Á höfuðborgarsvæðinu er Skipulagsstofnun. Þar á bæ líður tíminn raunar á öðrum hraða en í samfélaginu hérna úti. Við sem héldum að hraðinn og þar með tíminn væri afstæður í Súðavík fáum heldur betur fyrir peninginn þegar erindi eru send skipulagsyfirvöldum. Umhverfisstofnun virðist hafa þar tangarhald á öllu og allt stendur fast og mætti ætla að þar væri stjórnsýslan á pari við það sem finna má í sögum um ævintýri Ástríks í sögum frönsku teiknara og myndasöguhöfunda. Sum okkar muna þar hvernig rómverska stjórnsýslan lék söguhetjurnar. Flestum sem unnið hafa fyrir ríkisstofnanir vita að þær þurfa að lúta öllum reglum stjórnsýsluréttar; málshraða-, lögmætis-, andmæla-, jafnræðis- og upplýsingarreglna um gang mála svo eitthvað sé nefnt. Almenningur sér þetta sem flækjustig, skriffinsku eða bureaucratisma. Þegar út af bregður, seinangangur, óskilvirkni eða handvömm, mátti almennt búast við að embætti Umboðsmanns alþingis hefði samband ef ekki var kært til æðra stjórnvalds. Nú, eða málssókn rekin af hdl. eða hrl. sem hætti sér í fenið. Frá Súðavík. Slíkt virðist ekki gilda um allar ríkisstofnanir nema öðrum þræði og virðast þar Umhverfisstofnun og Skipulagsstofnun ekki lúta þessum lögmálum. Það er ekki ætlan mín að vega að starfsfólki þar, enda er ég þeirrar skoðunar að allir séu að gera sitt besta alla daga – meira og minna. En það er ekki þar með sagt að ekki sé allt yfir gagnrýni hafið. Sífellt rata inn ný atriði eða aðfinnslur í næsta skothelt skipulagið og nær skrifræðið að vefja því frekar og enn bólar ekkert á því sem varðar umsókn um leyfi til rekstrar verksmiðju hér inn af Súðavík. Árin eru orðin 6 í þessu ferli frá því ákveðið var að leggja af stað með verkefnið og næsta fátt orðið ljóst um gang mála. Ekkert öruggt, ekkert í hendi. Vegagerðin, sem er ein þeirra stofnana sem að þessu koma, stendur þar í sömu sporum og við hér, allt er háð duttlungum umhverfis- og skipulagsyfirvalda. Ég ætla ekki að fara ofan í það sem virtist stranda á um tíma með afgreiðslu, en þar er þó ljóst að inn í það rataði eitthvað sem virtist varða aðra stofnun en hafði málið til skoðunar. Í mínun huga var þar m.a. línudans með lögmætisreglu og almennt varðandi valdmörk. Vegagerðin er stofnun sem vinsælt er að hallmæla um allt sem varðar ógöngur ökutækja og farartækja almennt. Þeir leggi vegi mót sól og reyni að fletja út öll helstu kennileiti landsins með malbiki, en mest til óþurftar og þá alltaf á snjóþyngstu köflum. En raunveruleiki þeirra er hinn sami og annarra sem standa frami fyrir framkvæmdim, ekki má neitt án þess að fara í gegnum nálarauga skipulagsyfirvalda, umhverfisstofnana og sauðsvarst almúga í bland við stóreignamanna sem safna landrými og jörðum. Hendur Vegagerðarinnar eru jafnan bundnar eins og vísast er með endaleysuna með nýjan Vestfjarðaveg sem reynt hefur verið í áratugi að leggja í gegnum Teigskóg. Af því máli er lítill sómi en hyllir þó undir einhvers konar lausn á ... næstunni. Hér vestra snýst þetta um nettlegan iðnað sem að mestu rekst í sátt við menn og málleysingja og ætti, ef vel til tekst, að hafa lítil áhrif á fallegt umhverfjið hér á Vestfjörðum. Restur fyrirtækis sem myndi rífa upp atvinnulíf hér og vera þjóð og landi til framdráttar. Við höfum viðrað þetta við alla þá þingmenn sem hafa heimsótt okkur eða verið í samskiptum við okkur í gegnum tíðina. Reynt að koma einhverju til leiðar með því að nýta kraft þeirra sem fara með stjórn landsins. Þingflokkur Sjálfstæðisflokks er sá eini sem hefur komið hér við í langan tíma og var þeim að sönnu gerð ljós staðan. Þá hefur ráðherra úr hópi Framsóknarflokks mætt til okkar og veitt okkur stuðning, enda er að finna í þeirra hópi fólk sem vill landsbyggð vel. Næsta lítið er að frétta af öðrum þingmönnum, ráðherrum eða þingflokkim - þrátt fyrir að nú sé óhætt að segja að sótt séð að byggðarlaginu Súðavíkurhreppi með ólögum á sviði sveitarstjórnarmála. Mikið þætti mér vænt um að fá áheyrn þingmanna, ráðherra og annarra sem landinu stjórna og fá málið rekið áfram þannig að sómi sé að. Þingmönnum, ráðherrrum og embættum sem hér stjórna landi má vera orðið ljóst að hér víða um landa eru innviðir brothættir, byggðir í klóm samgöngukerfis ættuðu frá síðustu öld, dreifingu og kostnaði raforku sem setur allt í höft og þannig má víst áfram telja. Ísland og íbúa þess vantar fjölbreytni í atvinnulífið og meiri stöðugleika. Sjávarútvegur og ferðamennskan eru fallvaltar greinar, enda loðnubrestur sem markar atvinnulíf og áður óséða vá sem ógnar ferðamannaiðnaði. Alltaf ætti og gæti verið heppilegt að hafa aðra kosti á móti, framleiðslu- og útflutningsgrein sem er háð öðrum duttlungum. Hvað sem fólki finnst um iðjuna – uppdælingu kalkþörungs af hafsbotni, sem seint telst ógna umhverfi eða lífríki - þá ætti að taka þessari viðbót fagnandi í fábreytt atvinnulífið á Vestfjörðum sem öllu landinu gengur svo illa að styðja til góðra verka. Verið smá vestfirsk í anda, hvar sem þið búið. Í stað þess að ræða - gerið hluti, þokið málum áfram, sláið af kröfum og einfaldið regluverkið til þess að við getum gert eitthvað til að bjarga okkur. Með góðri kveðju að vestan. Höfundur er sveitarstjóri Súðavíkurhrepps. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Súðavíkurhreppur Vinnumarkaður Byggðamál Bragi Þór Thoroddsen Mest lesið Halldór 20.12.2025 Halldór Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar Hr. X bjargaði jólunum Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Öll lífsins gæði mynda skattstofn Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Þegar lögheimilið verður að útilokunartæki Jack Hrafnkell Daníelsson skrifar Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar Skoðun Mýtuvaxtarækt loftslagsafneitunar Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað ætlið þið að gera fyrir okkur Seyðfirðinga? Júlíana Björk Garðarsdóttir skrifar Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir skrifar Skoðun Jólagjöfin í ár Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samsköttun, samnýting eða skattahækkun? Kristófer Már Maronsson skrifar Skoðun Framkvæmdir við gatnamót Höfðabakka Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Á krossgötum í Atlantshafi Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Börnin fyrst – er framtíðarsýn Vestmannaeyja að fjara út? Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Jólahugvekja trans konu Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Erum við sérstökust í heimi? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar
Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar