Einn sjóður með nærri helming aflandskróna Hörður Ægisson skrifar 12. desember 2018 08:45 Umfang aflandskrónueigna nemur í dag um þremur prósentu af landsframleiðslu. Fréttablaðið/Ernir
Fjárfestingarsjóðir í stýringu bandaríska fyrirtækisins Loomis Sayles eiga samanlagt nærri helming allra aflandskrónueigna, sem nema um 84 milljörðum króna, en ríkisstjórnin samþykkti í síðustu viku að lagt yrði fyrir Alþingi frumvarp sem mun heimila eigendum slíkra krónueigna að skipta þeim yfir í erlendan gjaldeyri og flytja úr landi. Í fjárhagsupplýsingum frá sjóðastýringarfyrirtækinu má sjá að sex skuldabréfasjóðir Loomis Sayles áttu í lok október íslensk ríkisskuldabréf og innstæður í krónum að jafnvirði samtals um 35 milljarða. Þær eignir, sem eru skilgreindar sem aflandskrónur og hafa verið læstar undir höftum hér á landi frá setningu fjármagnshafta haustið 2008, eru fyrst og fremst í stýringu tveggja sjóða – Strategic Income Fund og Bond Fund – og er um helmingur þeirra bundinn í íslenskum ríkisskuldabréfum á gjalddaga í febrúar 2019 og október 2022. Heildarumfang aflandskrónueigna, sem námu um 40 prósentum af landsframleiðslu fyrir tíu árum, hefur minnkað verulega á undanförnum árum vegna aðgerða sem stjórnvöld hafa gripið til, meðal annars með fjárfestingarleið Seðlabankans 2012 til 2015 og gjaldeyrisútboði fyrir aflandskrónueigendur í júní 2016. Þá minnkaði aflandskrónustabbinn um 100 milljarða króna í mars 2017 þegar Seðlabankinn náði samkomulagi við hóp aflandskrónueigenda um að kaupa krónueignir þeirra á genginu 137,5 gagnvart evru. Loomis Sayles hafnaði tilboði Seðlabankans, rétt eins og þegar sjóðir fyrirtækisins gerðu þegar þeir tóku ekki þátt í aflandskrónuútboði bankans þar sem eigendum slíkra krónueigna bauðst að selja þær á genginu 190 krónur fyrir hverja evru. Ljóst er að sjóðirnir hafa hagnast á þeirri ákvörðun en við lokun markaða í gær var gengi krónunnar um 140 gagnvart evru. Umfang aflandskróna nemur í dag um 84 milljörðum, eða um 3 prósentum af landsframleiðslu, og eru sjóðir Loomis Sayles því eigendur að lágmarki um 42 prósenta allra slíkra krónueigna. Fram kom í tilkynningu frá Seðlabankanum og fjármála- og efnahagsráðuneytinu að þær auknu heimildir sem frumvarp Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra fela í sér fyrir aflandskrónueigendur séu þríþættar. Í fyrsta lagi er um að ræða almenna heimild fyrir alla aflandskrónueigendur til að losa eignir til að kaupa erlendan gjaldeyri og flytja á reikning erlendis. Í öðru lagi heimild fyrir aflandskrónueigendur, sem átt hafa aflandskrónueignir samfellt frá 28. nóvember 2008, til að losa þær eignir undan takmörkunum laganna. Í þriðja lagi er heimild fyrir einstaklinga til að taka út allt að 100 milljónir króna af reikningum sem eru háðir sérstökum takmörkunum. Ljóst er að gengi krónunnar mun gefa verulega eftir ef stór hluti aflandskrónueigenda kýs að skipta eignunum yfir í erlendan gjaldeyri. Seðlabankinn hefur hins sagt að hann sé vel í stakk búinn til að bregðast við skammtímabreytingum á gjaldeyrismarkaði en hreinn forði bankans nemur um 700 milljörðum króna. Már Guðmundsson seðlabankastjóri hefur sagt að hann óttist ekki þann möguleika að eigendur aflandskróna muni flytja eignir sínar úr landi yfir skamman tíma. Í viðtali við RÚV á föstudag benti Már á að þarna væru annars vegar aðilar sem væru með laust fé á bundnum reikningum og hins vegar sjóðir sem eru með fjárfestingar í verðbréfum þar sem töluvert væri eftir af líftíma þeirra. „Við vitum að þeir stærstu í seinni hópnum vilja ekkert fara og það geta verið tugir milljarða sem eru þannig og hitt er ekki allt í einu, þannig að þetta verður allt mjög viðráðanlegt,“ sagði Már.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Viðskipti innlent Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Konur geta tryggt sig á meðgöngu í fyrsta sinn Neytendur Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Viðskipti innlent Að leysa hratt og vel úr málum í stað þess að pirrast Atvinnulíf Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Viðskipti innlent Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Viðskipti innlent Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Viðskipti innlent Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Viðskipti innlent Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Tilkynningum frá verslunareigendum um alvarleg atvik hafi fjölgað „Þetta var ekki gert til að flækja, alls ekki“ Gunnþór verður formaður SFS í stað Guðmundar Heilbrigðiseftirlitið varaði við breytingunum Hvernig get ég ávaxtað peninga barnanna minna sem best? Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Efast um að veitingamenn óttist að styggja embættismenn Hrund nýr fjármálastjóri Íslandshótela Veitingamenn óttist að styggja embættismenn Regluverk setur langborðinu stólinn fyrir dyrnar Kvika segir hvorugt tilboð nægilega gott Keyptu Björgólf strax út úr Heimum Stólaleikur í Svörtuloftum Jón stýrir markaðsmálunum hjá N1 Stefán nýr útvarpsstjóri Sýnar Kastrup opnar á ný eftir karp við heilbrigðiseftirlitið Kjarasamningar undirritaðir fyrir nær allt launafólk Enn færri komast að í HR en vilja Sigríður Theódóra til Aton Dæmdur skattsvikari beri enga ábyrgð á fjármálum fyrirtækisins Stórfyrirtæki flýi borgina vegna skatta Skúli og félagar aftur sýknaðir af milljarðakröfum Sjá meira
Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Viðskipti innlent
Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Viðskipti innlent