Stormur eða hvassviðri á landinu öllu seinnipartinn Birgir Olgeirsson skrifar 28. nóvember 2018 07:15 Svipað veður á morgun og gera spár ekki ráð fyrir að dragi úr vindi og úrkomu fyrr en seint á morgun og föstudag. Vísir/Vilhelm
Norðaustan átt mun sækja í sig veðrið í dag og verður hvassviðri eða stormur á öllu landinu seinnipartinn. Fram kemur á Veðurstofu Íslands að um landið norðanvert megi búast við að úrkoman sem með vindinum fylgir verði í formi snjókomu, en slyddu eða jafnvel rigningu á Austfjörðum. Á Suðausturlandi verður rigning á köflum, úrkomumeira austan Öræfa á meðan þurrt verður að mestu sunnan- og vestanlands. Hiti um og undir frostmarki fyrir norðan en 0 til 7 stiga hiti syðra, mildast við suðausturströndina. Svipað veður á morgun og gera spár ekki ráð fyrir að dragi úr vindi og úrkomu fyrr en seint á morgun og föstudag. Þokkalegt veður víðast hvar um helgina en él í flestum landshlutum og frost. Fremur líklegt er að færð muni spillast fram á föstudag, einkum á fjallvegum fyrir norðan og austan og ætti fólk sem hyggur á ferðir milli landshluta að fylgjast vel með fréttum að veðri og færð. Er gul viðvörun í gildi fyrir landið allt, en hún tekur fyrst í gildi á hádegi á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Austfjörðum og Suðausturlandi. Klukkan 17 verður gul viðvörun komin í gildi á öllu landinu og mun standa fram að miðnætti í kvöld. Henni er aflétt eftir miðnætti á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu en mun standa yfir fram á aðfaranótt föstudags á austanverðu landinu.
Veður Mest lesið „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Innlent Halldór Blöndal er látinn Innlent Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Innlent Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Erlent Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Erlent Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum Innlent Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Eldur í Tívolí Ekið á gangandi vegfaranda á Sæbraut Makríllinn enn hitamál og áfall í fiskeldi í Tálknafirði Hjálmar gefur ekki kost á sér Eyjamenn ósáttir við nýbirta samgönguáætlun Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Gæsluvarðhald vegna andláts í Kópavogi framlengt Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Tuttugu þúsund fiskar drápust á Tálknafirði Segja frekari úrbóta þörf og vísa meðal annars til PPP Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Halldór Blöndal er látinn Kveiktu á 200 kertum fyrir drengina sem hafa látist í baráttu við fíkn „Þarna var bara verið að tikka í box“ Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ „Þessir þrír flokkar til þess að gera tómar skeljar“ Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Umdeildur athafnamaður og vendingar á vinstri væng Ekki dómarans eins að meta hvort umskurn væri hættuleg Theodóra ætlar ekki fram aftur fyrir Viðreisn „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Lesstofu Borgarskjalasafnsins lokað Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Það hafi víst verið haft samráð við sjávarútveginn Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir „Við vitum að áföllin munu koma“ Alexandra sækist eftir oddvitasætinu Sjá meira