Ísland meðal ríkja sem stöðvuðu stofnun griðarsvæðis hvala í S-Atlantshafi Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 12. september 2018 12:00 Þegar eru til griðarsvæði hvala í Indlandshafi og við Suðurskautslandið. Vísir/AP
Ísland er á meðal 25 ríkja sem komu í veg fyrir samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins um stofnun griðarsvæðis fyrir hvali í Suður-Atlantshafi en fundur ráðsins stendur yfir í Brasilíu. Edson Duarte, Umhverfisráðherra Brasilíu, hefur lýst yfir vonbrigðum með niðurstöðuna en Brasilía lagði tillöguna fram. „Við munum reyna að vinna á öðrum vettvangi Alþjóðahvalveiðiráðsins til að tryggja að griðarsvæðið verði endanlega að veruleika,“ segir Duarte í samtali við breska ríkisútvarpið. 39 ríki studdu tillöguna en 25 kusu gegn. Tillagan féll þar sem tvo þriðju hluta þarf til að samþykkja tillögur í alþjóðahvalveiðiráðinu. Ísland gegn tillögunni ásamt ríkjum á borð við Japan, Rússland og Noreg. Þetta er í annað sinn sem tillaga af þessum toga er felld í Alþjóðahvalveiðiráðinu en fyrri tillagan var felld á fundi ráðsins árið 2012. Þegar eru til tvö griðarsvæði í heiminum sem eru samþykkt af alþjóðahvalveiðiráðinu, þau eru í Indlandshafi og í kring um Suðurskautslandið. Fulltrúar Japans hafa þá lagt til að banni við hvalveiðum í atvinnuskyni sem komið var á árið 1986 verði aflétt. Sú tillaga verður rædd síðar í vikunni.
Hvalveiðar Suðurskautslandið Umhverfismál Mest lesið Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent Innanlandsflugi aflýst Innlent Fleiri fréttir Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Sjá meira