Varað við slæmu ferðaveðri undir Öræfajökli Birgir Olgeirsson skrifar 2. janúar 2018 10:42 Það er mjög hvasst undir Öræfajökli og skafrenningur og því blint til aksturs. Loftmyndir ehf.
Lögreglan á Suðurlandi varar við slæmu ferðaveðri undir Öræfajökli þessa stundina. Þar er mjög hvasst og skafrenningur og því blint til aksturs. Þeim sem ekki þurfa nauðsynlega að vera á ferðinni er bent á að doka við og bíða eftir að aðstæður skáni. Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að hálka sé á flestum leiðum á Suðurlandi og hálka og hálkublettir á Suðurlandi. Á Vestfjörðum hálka á vegum en snjóþekja norður í Árneshrepp. Hrafnseyrar- og Dynjandisheiðar eru ófærar. Hálka eða snjóþekja er á flestum leiðum á Norðurlandi og víða skafrenningur á fjallvegum. Það er einnig snjóþekja eða hálka á vegum á Austurlandi en þæfingsfærð á Vatnsskarði eystra. Ófært yfir Öxi og Breiðdalsheiði. Snjóþekja er með Suðausturlandi og éljagangur.Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. Veðurstofa Íslands gerir ráð fyrir austan átt í dag, 10-15 metrum á sekúndu, en 18-25 syðst á landinu og við Öræfajökul. Dálítil él austanlands, slydda eða snjókoma fram eftir degi á Suðausturlandi, en þurrt að kalla í öðrum landshlutum. Austan og norðaustan 5-13 á morgun, en hvassara með suðurströndinni. Lítils háttar él um landið austanvert, en bjartviðri vestantil. Frost 0 til 7 stig, en frostlaust syðst.
Samgöngur Veður Mest lesið Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Innlent Epstein-skjölin birt Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Innlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Innlent Pútín sagður hafa valið Witkoff Erlent Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Innlent Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Innlent Fleiri fréttir Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Götulokanir í miðborginni á Þorláksmessu og um áramót Logi kynnti aðgerðir í þágu fjölmiðla Einn handtekinn í aðgerð sérsveitar á Selfossi Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Sjá meira