Strekkingsvindur og éljagangur á aðfangadag Kristín Ólafsdóttir skrifar 23. desember 2017 08:07 Veður fer kólnandi um allt land næstu daga. vísir/anton brink
Gert er ráð fyrir snjókomu sunnanlands seint í kvöld en veður fer kólnandi um allt land næstu daga, að því er segir á vef Veðurstofu Íslands. Aðfangadagur verður vindasamur. Allhvass eða hvass vindur er norðvestantil á landinu í dag, Þorláksmessu. Þá verður víða snjókoma fyrir norðan en úrkomulítið sunnan heiða fram eftir degi. Seint í kvöld er þó búist við snjókomu sunnanlands. Á morgun, aðfangadag, er gert ráð fyrir strekkingsvindi og éljagangi um allt land. Heldur hægari vindur verður á jóladag og léttskýjað syðra, en áfram él norðantil á landinu.Sjá einnig: Betra að leggja snemma af stað ef förinni er heitið um norðanvert landið á Þorláksmessu Þá er varað við hálku víða um land en hægt er að fylgjast með færð á vegum á vef vegagerðarinnar.Veðurhorfur á landinu yfir jólin:Á sunnudag (aðfangadagur jóla):Norðaustanátt, víða 10-15 m/s og él. Frost 0 til 8 stig. Á mánudag (jóladagur):Norðaustan 8-13 m/s og él á N-verðu landinu, en bjartviðri S-til. Frost 2 til 12 stig. Á þriðjudag (annar í jólum) og miðvikudag:Ákveðin norðaustanátt. Éljagangur N- og A-lands, en léttskýjað með köflum á S- og V-landi. Áfram kalt í veðri. Á fimmtudag og föstudag:Útlit fyrir svipað veður áfram.
Veður Mest lesið Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Innlent „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Innlent „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Innlent Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ Innlent Pútín sagður hafa valið Witkoff Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Epstein-skjölin birt Erlent Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa Innlent Fleiri fréttir Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla Sjá meira