Hann Daníel Elí Johansen sem er alveg nýorðinn níu ára, gengur í Vesturbæjarskóla og finnst skemmtilegast að teikna. Á morgnana fær hann líka stundum að fara í tölvu að vinna í bók sem hann er að búa til. Klippa: Kompás - Lokuð á heimilinu með geðveikri móður Hann sést sjaldan öðruvísi en með Syrpu í hendi og er sérfróður um lífið í Andabæ. Því fær hann hér nokkrar spurningar sem tengjast því.Timinn vel nýttur í lestur í röðinni að vatnsrennibrautargarði á Kanarí.Mynd/IDEr einhver munur á Rip, Rap og Rup? Það er dálítill munur á þeim útlitslega svo ég þekki þá í sundur án þess að þeir séu með derhúfurnar, en þeir eru mjög líkar persónur. Í einni sögu segir að Rip sé sérfræðingur í landakortum, en oftast gera þeir það sama. Hvað borða persónurnar í Andabæ? Pitsur, hamborgara og pulsur. Og kökur. Bara alveg eins og við.Slakað á í garðinum á sólríkum sumardegi.Mynd/IDGetum við lært eitthvað af Andrési önd? Að það á að gefa börnum nammi á hrekkjavökunni. Í Andabæ eru líka allir vinir – en stundum ekki. Það er alltaf spennandi að vita hvað gerist, en ævintýrin enda vel. Finnst þér Bjarnabófarnir slyngir? Já. Þeir rændu rúmi Rokkafellis og Monu Lisu. Þeir hafa stolið demöntum og peningum og kórónum. En þeir eru alltaf handteknir á endanum.Lestrarstund á snyrtingunni.Mynd/IDEru fleiri athyglisverðar persónur í Andabæ en Andrés, Andrésína, strákarnir og Jóakim, Mikki og Mína? Guffi og Bubbi vinur hans eru skemmtilegir. Mikk og Makk, frændur Mikka, eru góðir vinir. Jónas er nágranni Andrésar og alltaf fúll. Stálöndin kemur til bjargar þegar Andrés bregður sér í hlutverk ofurhetju. Fiðri frændi hans og jafnaldri er mjög skrítinn og fyndinn, svolítið vitlaus. Gassi gæs er aðstoðarmaður Andreu, sem allir kalla ömmu önd, nema Jóakim. Þau eiga fullt af beljum, hænum og eina geit sem heitir Nonni. ...... Krakkar Mest lesið Enn fjölgar í Hraðfréttafjölskyldunni Lífið Léttir að geta loks rætt íslenskan leik opinberlega Leikjavísir Ísland í neðsta og næstneðsta sæti hjá Ísraelum Lífið Máli Baldoni vísað frá Lífið Dekurbossinn Hjalti: „Mömmur eru einfaldlega bestar og mín var ein sú allra besta“ Áskorun „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Menning Að eiturefnum sé dreift úr flugvélum yfir fólk Lífið „Grínast oft með að ég gaf honum um ellefu ár til að hætta við“ Lífið Amatörar, hvalfirskur bóndi og barátta við borgina verðlaunuð Bíó og sjónvarp Listamaðurinn sem gleymdist gjörsamlega Menning