Fylgstu með storminum nálgast Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 29. desember 2015 09:28 Veðurstofan varar við stormi víða á landinu í dag. vísir
Veðurstofan hefur varað við stormi víða á landinu í dag en búast má við roki eða ofsaveðri austantil á landinu. Í kvöld mun svo hvessa ört og í nótt fer mjög djúp lægð norður yfir landið. Á vef Veðurstofunnar segir að aðal vindstrengur þessarar lægðar sé austan við lægðarmiðjuna og að nýjustu spár geri ráð fyrir að vindstrengurinn nái inn á landið austanvert með sunnan roki og sums staðar fárviðri við austurströndina í nótt. Mikilvægt sé að fylgjast með veðurspám því braut lægðarinnar þurfi að ekki að breytast mikið til þess að miklar breytingar verði á veðurspám. Fylgjast má með lægðinni nálgast landið í spilaranum hér að neðan og á heimasíðu Nullschool. Athugið að kortið sýnir ekki veðrið í beinni útsendingu heldur er um spákort að ræða sem uppfærist reglulega.Veðurhorfur á landinu í dag:Sunnan og síðar suðaustan 8-15 metrar á sekúndu og dálítil él, þurrt að mestu um landið norðaustanvert, en slydda eða rigning með köflum sunnantil.Vaxandi vindur þegar líður á daginn, austan og norðaustan 18-25 metrar á sekúndu seint í kvöld, hvassast suðaustan- og austantil og talsverð rigning þar, en úrkomuminna í öðrum landshlutum.Suðlæg átt 20-30 metrar á sekúndu austantil á landinu seint í nótt, en annars mun hægari breytileg átt. Suðvestan 15-25 metrar á sekúndu upp úr hádegi á morgun, hvassast norðantil á landinu, en hægari annað kvöld. Skúrir eða él, en þurrt að mestu norðaustantil. Hiti um eða yfir frostmarki.
Veður Mest lesið Verst þegar barninu líður eins og það sé annars flokks Innlent Stærsti óttinn varð að veruleika á þriðja degi af 90 Innlent Rétt náði að stilla hjálminn sem bjargaði lífi dótturinnar Innlent Fjórtán ára á rúntinum Innlent Dómur yfir Bergvini óbreyttur en þarf að greiða hærri miskabætur Innlent Ökumaður dráttarvélarinnar fluttur með þyrlu Innlent „Af hverju sit ég einn af öllum þessum mönnum fyrir framan dómara?“ Innlent Fjögurra ára martröð Karlottu lauk með sýknudómi Innlent Oscar fluttur úr landi á þriðjudag Innlent Segir Ísraelsher hafa myrt leiðtoga Hamas Erlent Fleiri fréttir Enn unnið að því að ná dráttarvélinni upp eftir alvarlegt slys í Hvítá Strandveiðifrumvarp „með ólíkindum“ og drama í borðtennisheiminum Gæsluvarðhald framlengt um fjórar vikur Kynna bráðabirgðarúfærslu á strandveiðunum Dómur yfir Bergvini óbreyttur en þarf að greiða hærri miskabætur Fjórtán ára á rúntinum Verst þegar barninu líður eins og það sé annars flokks Rétt náði að stilla hjálminn sem bjargaði lífi dótturinnar Átta nemendur með ágætiseinkunn Margt til fyrirmyndar á Íslandi en gerir athugasemd við einangrunarvistun ódæmdra fanga Oscar fluttur úr landi á þriðjudag Sveitastjóraskipti í Reykhólahreppi Stærsti óttinn varð að veruleika á þriðja degi af 90 Fasteignamat fyrir 2026: Seltjarnarnes hástökkvarinn á höfuðborgarsvæðinu Tjaldaði á túni í miðborg Reykjavíkur Samrunatillögur bankanna og sjóveikur sundkappi Ökumaður dráttarvélarinnar fluttur með þyrlu Viðja bar sex lömbum takk fyrir „Af hverju sit ég einn af öllum þessum mönnum fyrir framan dómara?“ Dúxinn greip í saxófóninn Fjögurra ára martröð Karlottu lauk með sýknudómi Bein útsending: Uggandi yfir breytingum á Heiðmörk Úrslit hjá sósíalistum nær nákvæmlega eftir leiðbeiningum Dró vélarvana fiskibát að landi nærri Grindavík Bein útsending: Norðurslóðir í breyttum heimi Verzlingar settu upp húfur og skelltu sér til Krítar Óttast að stefna Trump-stjórnarinnar fæli námsmenn frá Bandaríkjunum Ísland verði að hafa skoðun á vörnum NATO við landið Fasteignamatið hækkar og áhyggjufullir námsmenn Staðfesta byggingaráform á Fannborgar- og Traðarreit Sjá meira