Birtu mynd af sprengjunni sem sögð er hafa grandað flugvélinni Samúel Karl Ólason skrifar 18. nóvember 2015 15:42 Hér má sjá myndina af sprengju sem ISIS segir hafa verið notaða til að granda flugvél.
Fjölmiðladeild samtakanna sem kenna sig við Íslamskt ríki birtu í dag nýja útgáfu tímaritsins Dabiq. Þar má sjá mynd af sprengju í Scwepper ananassafadós og segja þeir að hún hafi verið notuð til að granda rússnesku flugvélinni yfir Sinaiskaga. Þar að auki voru birtar myndir af líkum tveggja gísla samtakanna, sem hafa verið teknir af lífi. Mennirnir voru frá Noregi og Kína. Við myndirnar af þeim segir að þeir hafi verið yfirgefnir af stjórnvöldum sínum. Áður höfðu verið birtar myndir af þeim þar sem þeir voru sagðir til sölu. Fjölskylda Ole Johan Grimsgaard-Ofstad sagði frá því í september að þau hefðu ekki efni á því að greiða lausnargjaldið sem ISIS-liðar höfðu sett fram eftir að hann var handsamaður í janúar. Þeir voru sagðir krefjast fleiri tuga milljóna króna.Norska ríkisstjórnin neitaði að semja við hryðjuverkamennina.Sjá einnig: Fjölskylda norska gíslsins segist ekki hafa efni á að greiða lausnargjaldið. Tímaritið Dabiq er á ensku og ber nýjasta tölublaðið titilinn „Just Terror“. Þar er fjallað um árásirnar í París sem og rússnesku flugvélina sem grandað var yfir Sinaiskaga. ISIS segja að upprunalega hafi staðið til að granda flugvél frá Bandaríkjunum, en áætlunum samtakanna hafi verið breytt.
Mið-Austurlönd Mest lesið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Innlent „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Innlent Selfoss stöðvaður í Bretlandi Innlent Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Innlent Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Erlent Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Innlent Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Erlent Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Innlent Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Fleiri fréttir Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Frú Macron í klandri eftir ósmekkleg ummæli um femínista „Dr. Dauði“ í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tólf Ekki hafi verið rétt að benda á Skandia-manninn sem morðingja Palme Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Segir „evrópsk svín“ vilja hagnast á falli Rússlands Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Eldur í Tívolí Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Trump setur hafnbann á olíuskip á leið til og frá Venesúela Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Brestir í MAGA-múrnum Lögðu lengi á ráðin um herlög Tólf ára drengur grunaður um morð í Malmö Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Ósátt við lögreglu sem leitar enn morðingjans Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar FDA samþykkir tvö ný lyf gegn ónæmum lekandabakteríum Vill fimm milljarða Bandaríkjadala frá BBC Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Sjá meira