Krefjast þess að strætóskýlinu verði skilað Andri Þór Sturluson skrifar 14. febrúar 2014 16:45 Það er eins og skýlið hafi bara gufað upp. Er þetta verk Reykjavíkurborgar, Strætó eða skipulagðra glæpasamtaka? „
Hversu langt er þess að bíða að fyrsti Íslendingurinn verði úti við Þjóðminjasafnið vegna skýlisskorts?“ spyr áhyggjufullur borgari á samfélagi Íslendinga á Redditr/Iceland. Svo virðist sem mikilvægt strætóskýli við Þjóðminjasafnið hafi verið fjarlægt og eru margir í sárum vegna þessa. Í opnu bréfi til íslensku þjóðarinnar þar sem vakið er athygli á þessari ósvífni segir: „Kæru Íslendingar! Vegna kvartana yfir reykingum í strætóskýli við Þjóðminjasafnið var skýlið fjarlægt. Ég krefst þess að skýlinu verði skilað, ég vænti þess ekki að þeim sem kvörtuðu yfir reykingunum þyki þetta ásættanleg niðurstaða. Þetta er eins og barn sé skorið í tvennt í forræðisdeilu...og báðum hlutunum hent í ruslið, allir tapa. Ég er búinn að pósta þessum texta á Strætó, Jón Gnarr og Reykjavíkurborg, auk þess sem margir hafa tekið undir og póstað tagginu #skiliðskýlinu2014 á síður fyrrnefndra aðila. Ef þið notið strætó, og finnst þetta fáránlegt, mynduð þið þá vera svo góð að styðja þennan málstað með því að pósta þessu taggi eða eigin texta á síður ofangreindra.“ Gat nú verið. Hinar stórhættulegu reykingar láta til skara skríða enn á ný og verða til þess að eina skjólið sem veðurbarðir notendur almenningssamgangna á þessu svæði hafa er fjarlægt og afleiðingarnar eru stóraukinn kostnaður við húfu og vettlingakaup. Ekki aðeins þurfa ferðalangar að bíða í von og ótta á hverjum degi hvort strætisvagn komi á réttum tíma heldur bætist nú við barátta við veðuröflin. Svo virðist sem Strætó hafi fríað sig ábyrgð og bendi á Reykjavíkurborg sem aðal sökudólg í þessu hvarfi og lögreglan gerir ekkert.
Harmageddon Mest lesið Chicane heillaðist af Vigri í frakklandi Harmageddon Sannleikurinn: Fimm enn í gæsluvarðhaldi grunaðir um að spila jólalög Harmageddon Hæfustu tónlistarmenn Íslands stofna nýja hljómsveit Harmageddon Slash aftur í Guns N' Roses? Harmageddon „Úrskurður útlendingastofnunar ber einkenni rasisma“ Harmageddon Sex sveitarfélög alveg nóg Harmageddon Cosmos: A Spacetime Odyssey byrjuðu í gær Harmageddon Segir Þjóðkirkju stuðla að heilaskaða Íslendinga Harmageddon Nýtt myndband Kiriyama Family frumsýnt á Vísi Harmageddon Fimm verstu handboltarokklögin Harmageddon