Gamansamur Valtýr 27. október 2012 06:00 Valtýr Sigurðsson, fyrrverandi ríkissaksóknari, sendir mér orðsendingu í Fréttablaðinu 25. október. Við erum báðir orðnir lögformlegir ellibelgir. Hann hætti fyrir aldurs sakir sem ríkissaksóknari fyrir nokkrum misserum og ég hætti störfum sem hæstaréttardómari um síðustu mánaðamót. Það er því viss hætta á að elliglapa kunni að verða vart í skrifum okkar. Lesendur eru beðnir um að dæma okkur ekki hart fyrir slíkt. Ég áfellist Valtý ekki fyrir hans glöp en tel nauðsynlegt að hafa orð á þeim. Aðrir mega benda mér á mín. Hann segir mig hafa gefið þá skýringu á tíðni sératkvæða minna að ég hafi orðið fyrir mótbyr og andstöðu annarra dómara. Þetta er ekki rétt eins og fram kom í þættinum „Klinkinu" sem hann segist hafa horft á. Mótbyrinn sem ég nefndi hafði ekkert að gera með úrlausn einstakra dómsmála heldur umfjöllun um endurbætur á starfsháttum réttarins. Þá segir hann mig hafa sett fram þá skoðun að ekki eigi að taka tillit til óbeinna sönnunargagna nema í undantekningartilvikum. Valtýr telur að þessi meinta afstaða mín sé í andstöðu við 47. gr. laga um meðferð opinberra mála. Hér vísar höfundur til laga sem féllu úr gildi fyrir nokkrum árum þegar lög nr. 88/2008 um meðferð sakamála tóku við. Í núgildandi lögum er ákvæði um óbeina sönnunarfærslu að finna í 2. mgr. 109. gr. Ég vona að lesendur misvirði ekki við Valtý að hann vísi í gömlu lögin. Þau giltu um þetta mestan þann tíma sem hann var við störf. Staðhæfing hans um afstöðu mína í þessu efni er röng. Af skrifum mínum hefur hins vegar mátt ráða að ég telji óbeina sönnunarfærslu oftast veikari en beina. Kannski er hann á annarri skoðun? Gaman væri að fá að kynnast sjónarmiðum Valtýs um þetta. Hann nefnir líka í grein sinni þjóðarétt til sögunnar en á því réttarsviði er fjallað um lögskipti milli þjóðríkja. Hann gæti þá í leiðinni skýrt út fyrir lesendum þýðingu þjóðaréttarins fyrir álitaefnið. Svo segir hann mig hafa „samsamað mig algjörlega málatilbúnaði skjólstæðingsins hverju sinni" þegar ég var málflytjandi. Ekki veit ég hvaðan hann hefur þessa speki og heldur ekki hvaða þýðingu staðhæfingin hefur fyrir störf mín sem dómari. Kannski ruglast hann í þessu vegna þess að ég lét stundum í ljósi skoðun mína á dómum sem ég taldi ranga, þó að í hlut ættu skjólstæðingar mínir. Það ættu lögmenn að gera í ríkari mæli en nú tíðkast. Valtýr segist hafa gert kröfu um að ég viki sæti í tilteknu máli vegna skoðana minna um að sanna þurfi sök sakbornings. Þessi krafa var undarleg svo ekki sé meira sagt. Engum dómara við Hæstarétt datt í hug að taka bæri hana til greina. Mér er nær að halda að allir hafi talið manninn vera að grínast enda er hann þekktur fyrir gamanmál sín. Meginerindi Valtýs sýnist vera að birta órökstudda palladóma sína um mig. Með tungutaki dagsins má segja að hann fari í manninn en ekki boltann. Gaman að því. Hann virðist telja að ég hafi ekki verið vel samstarfshæfur vegna þess að ég sé einþykkur í skoðunum. Um þetta getur Valtýr ekki borið þar sem hann hefur aldrei starfað með mér. Ég held að skoðun hans sé röng. Ef til vill talar hann svona vegna þess að hann hefur skynjað að ég hef alltaf leitast við að byggja afstöðu mína til mála á málefnalegum röksemdum og ekki verið tilbúinn til að breyta henni nema sýnt hafi verið fram á að mér hafi missést og sterkari rök leiði til annarrar niðurstöðu. Ég samþykki ekki niðurstöðu í lögfræðilegu álitamáli fyrir sakir vinskapar. Ég hef raunar fært rök að því að dómurum við Hæstarétt sé skylt að beita þessum mælikvarða við störf sín. Sumir virðast telja að dómarar í fjölskipuðum dómi eigi fyrst og fremst að vera góðir hver við annan og láta vinskapinn sín í milli ráða niðurstöðum. Dómsniðurstöður eigi að byggjast á samningum milli þeirra. Slíkt fyrirkomulag hlyti þá að leiða til þess að milli dómara skapist innbyrðis samningsstaða. Hafi einn haft sitt fram í máli Péturs standi rök til þess að hann fallist á það sem annar segir í máli Páls. Að öðrum kosti náist ekki jafnvægi milli vina. Ég hef aldrei í samskiptum við aðra dómara tekið því illa þó að þeir hafi haft aðra afstöðu en ég til sakarefnis máls. Hafi svo staðið á hef ég einfaldlega skilað sératkvæði. Og ekki bara það. Ég hreinlega hvatti stundum samdómara mína til að skila sératkvæði ef þeir kváðust vera ósammála mér og svo stóð á að meirihluti var mér sammála. Taldi ég skyldu þeirra að standa svo að málum, þar sem þeir sætu ekki í fjölskipuðum dómstólnum til að gera annað en það sem sannfæring þeirra byði. Ég vil ekki fella neina palladóma um Valtý gamla nú að loknum starfsferli hans með sama hætti og hann fellir þá um mig. Lesendur mega samt ekki skilja það svo að ég telji feril hans flekklausan. Ég einfaldlega tel það ekki samrýmast almennum kurteisisreglum að birta opinberlega slíka órökstudda palladóma. Og láti einhver sér koma í hug að Valtýr hafi verið fenginn af fyrrverandi samstarfsmönnum mínum við Hæstarétt til að fella dóma sína get ég fullyrt að svo er ekki. Ummæli þeirra um mig við starfslok mín sýndu svo ekki varð um villst að þau höfðu kunnað vel að meta starf mitt í réttinum. Þetta þykist ég, þrátt fyrir aldurinn, enn þá muna þó að fullar fjórar vikur séu liðnar. Það lá við að ég færi hjá mér við hólið. Loks er freistandi í tilefni af grein Valtýs að spyrja hann eftirtalinna spurninga: 1. Telur hann að aðrar lagareglur gildi um sönnun sakar þar sem ákært er fyrir kynferðisbrot en gilda um önnur brot? 2. Ef hann telur sömu reglur gilda telur hann þá að greina megi mun á því sem talið hefur verið duga til sönnunarfærslu í málum vegna kynferðisbrota og í öðrum brotaflokkum? 3. Er hann tilbúinn til að fjalla efnislega um samanburð á kröfum til sönnunar í þeim dómsmálum sem ég tiltók í grein minni „Mál af þessu tagi", sem Valtýr nefnir til sögunnar? Ég segi við hann eins og gjarnan er sagt við nemendur á skriflegum prófum: Rökstyddu svarið. Þú mátt alveg, Valtýr minn, í leiðinni láta fylgja nokkur hrakyrði um mig svo þér líði betur á eftir. Það yrði bara gaman að því. Svo gætum við sameiginlega farið þess á leit við Walter Matthau og Jack Lemmon að leika okkur í kvikmynd – bara ef þeir væru ekki dauðir eins og við verðum bráðum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Jón Steinar Gunnlaugsson Skoðanir Mest lesið Af hverju byggjum við innan gróinna hverfa? Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Er stríðsglæpamaður í rútunni? Ragnhildur Hólmgeirsdóttir, Hrönn Guðmundsdóttir Skoðun Gigt, vinnumarkaðurinn, fjölgun hlutastarfa og viðeigandi aðlögun Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Halldór 31.05.2025 Halldór Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir Skoðun Til hamingju með sjómannadaginn Sigurjón Þórðarson Skoðun Er ekki tími til kominn að tengja? Kristín María Birgisdóttir Skoðun Tjáningarfrelsi, gagnrýni og Snorri Másson Birgir Orri Ásgrímsson Skoðun Bensínstöðvardíll og Birkimelur Helgi Áss Grétarsson Skoðun Trollveiðar og veiðiráðgjöf Magnús Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Af hverju byggjum við innan gróinna hverfa? Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Gigt, vinnumarkaðurinn, fjölgun hlutastarfa og viðeigandi aðlögun Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Er stríðsglæpamaður í rútunni? Ragnhildur Hólmgeirsdóttir, Hrönn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju með sjómannadaginn Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Er ekki tími til kominn að tengja? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Barnasáttmáli fyrir öll börn Guðný Björk Eydal,Paola Cardenas skrifar Skoðun Ójafnvægið sem heimurinn býr við – og skellur á Bakka Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bensínstöðvardíll og Birkimelur Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Trollveiðar og veiðiráðgjöf Magnús Jónsson skrifar Skoðun Gríðarlegir hagsmunir í húfi Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Skynsamleg forgangsröðun fjár Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Eins skýrt og það verður Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Tjáningarfrelsi, gagnrýni og Snorri Másson Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Að sameinast fjölskyldu sinni Guðrún Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Þögnin sem skapaði ótta – arfleifð Þórarins í Sameyki Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Súrdeigsbrauð, ilmkjarnaolíur og Samtökin 78 Snorri Másson skrifar Skoðun Eru forvarnir í hættu? Dagbjört Harðardóttir skrifar Skoðun Tveir alþingismenn og Gaza Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Hver borgar fyrir ódýrar lóðir? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Erum við að lengja dauðann en ekki lífið? Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar Skoðun Mikill munur á aðgengi að líknarmeðferð í Evrópu Kristín Lára Ólafsdóttir skrifar Skoðun Sumarið verður nýtt vel til uppbyggingar snjóflóðavarna Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Verður það að vera Ísrael? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Dýravernd - frumbyggjahættir Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Stórstraumsfjara mæld - HMS ráðþrota Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum fordómum ekki umburðarlyndi Snorri Sturluson skrifar Skoðun Landbúnaður á tímamótum – Við þurfum nýja stefnu Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Sjómenn til hamingju! Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar Skoðun Leyfum mennskunni að sigra Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Sjá meira
Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir Skoðun
Skoðun Gigt, vinnumarkaðurinn, fjölgun hlutastarfa og viðeigandi aðlögun Hrönn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir skrifar
Nú er tími til aðgerða: Tóbaks- og nikótínfrítt Ísland Vala Smáradóttir,Jóhanna S. Kristjánsdóttir Skoðun