Mikilvægi stuðsins 21. janúar 2010 00:01 Þótt það blasi nú kannski ekki við, þá legg ég mikla áherslu á það að vera í stuði. Og ég er í mestu stuði ef ég fíla mig bæði hipp og kúl. Líði mér hvorki hipp né kúl þyrmir yfir mig þungbúið óöryggi og deyfð - já, almennt bara helvítis aumingjaskapur. Best er að vera í svo góðu stuði að maður spretti upp á morgnana, lagi sér rótsterkt kaffi og haldist í stuði fram á kvöld. Þannig er best að vera til. Þegar ekkert bítur á mann. Þegar maður getur hnarreistur starað framan í fólk fullur sjálfsöryggis og mikilfengleika. Nagli. Efnagrauturinn í heilanum í ofurjafnvægi. Maður kannski komandi úr ræktinni eins og bólgnar æðar sem slá af alefli á enninu bera fagurt vitni. Blastar FM í botn á fjölskyldubílnum og misskilur glott á gellu í næsta bíl. Þá líður manni eins og maður verði aldrei gamalmenni og hvað þá hrikalega ókúl lík. Nú eru erfiðir tímar í stuðinu. Ég sprett sjaldan á fætur, ligg bara eins og ræfill og kuðla sængina í heillöngum svefnrofunum þar til ég er næstum því orðinn of seinn. Ég held þetta sé skammdegið, vona það allavega. Nenni ekki að vera svona endalaust. Ég náði botninum nýlega þegar ég fór að haltra upp úr þurru. Held ég hafi tognað í svefni - hversu glatað er það? Við heltið bættist hljóð í öðrum skónum. Hittist þannig á að það var komið risagat á sólann þar sem gutlaði vatn af götunni. Í hverju skrefi heyrðist eins og verið væri að stinga fingri í fulla sultukrukku. Haltur með aumingjahljóð. Það er langt síðan mér hefur liðið jafn lítið kúl. Þetta átakanlega ekki-töff-ástand lagaðist fljótlega með nýjum skóm. Mér leið stórkostlega þegar ég hætti smám saman að vera haltur. Með hækkandi sól sé ég svo fram á enn meira stuð. Ég nenni ekki öðru en að vera bjartsýnn. Já, já, þetta endar allt á einn veg, en fjandinn hafi að ég velti mér upp úr því endalaust. Maður verður að hafa framtíðarsýn. Á fimmtugsafmælisárinu sé ég mig blasta FM í fíkniefnasalasvörtum Ford Mustang. Ég hef náð mér í töff brúnku á heimsreisunni. Ég er langt undir kjörþyngd og það er löngu búið að leysa Icesave. Dúndur góðæri er komið aftur og þegar ég keyri fram hjá Hörpu á Hafnarbakkanum blasir við risaauglýsing fyrir tónleikana mína í kvöld. Það er auðvitað löngu uppselt. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þið dirfist að kalla mig fasista og rasista? Davíð Bergmann Skoðun Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen Skoðun Halldór 14.06.2025 Halldór Brotin stjórnarandstaða í fýlu Arnar Steinn Þórarinsson Skoðun Engin haldbær rök fyrir því að dánaraðstoð skaði líknarmeðferð Ingrid Kuhlman Skoðun Úthlutun Matvælasjóðs Fjóla Einarsdóttir Skoðun Auðlindin er sameign – en verðmætasköpunin er ekki sjálfgefin Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir Skoðun Aðlögun á Austurvelli Heiða Ingimarsdóttir Skoðun Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson Skoðun
Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen Skoðun
Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir Skoðun
Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson Skoðun
Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen Skoðun
Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir Skoðun
Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson Skoðun