Fórnarlamb krúnukúgara sonur Margrétar prinsessu Óli Tynes skrifar 30. október 2007 11:25 David Linley, markgreifi.
David Linley markgreifi, hefur verið nefndur sem sá meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar sem maður af íslenskum ættum er sakaður um að reyna að kúga fé út úr. Breskum fjölmiðlum hefur verið bannað að nafngreina hann, en nafn hans hefur skotið upp kollinum í fjölmiðlum vestanhafs. David Linley er sonur Margrétar prinsessu systur Elísabetar drottningar. Faðir hans er ljósmyndarinn Snowdon lávarður. Linley sem er 45 ára gamall er sá meðlimur konungsfjölskyldunnar sem hefur átt mestri velgengni að fagna í viðskiptalífinu. Hann er stjórnarformaður Christies uppboðshússins og er sjálfur frægur og vel metinn hönnuður. Meðal viðskiptavina hans eru Elton John, Oprah Winfrey og Mick Jagger. Hann hefur hannað húsgögn fyrir Metropolitan listasafnið í New York og lystisnekkjur fyrir arabiska fursta. Markgreifinn er þekktur fyrir að verja einkalíf sitt af hörku. Árið 1990 braut hann þá hefð konungsfjölskyldunnar að standa ekki í málaferlum við fjölmiðla. Hann fór í mál við dagblað sem hélt því fram að hann hefði verið með drykkjulæti á ölstofu. Linley vann málið og fékk 30 þúsund sterlingspund í miskabætur.
Erlent Mest lesið Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Innlent Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Erlent Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér Innlent „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Innlent Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á ný Innlent „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Innlent Líkamsárás í farþegaskipi Innlent Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Erlent Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl Erlent Fleiri fréttir Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Forsætisráðherra segir að átökin gætu færst nær stríði Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ „Tími til kominn að ljúka stríðinu á Gasa“ Lýsa yfir herlögum í Taílandi Ísraelsþing ályktar um innlimun Vesturbakkans Jeremy Corbyn leiðir nýja stjórnmálahreyfingu Þrýstingur eykst á Starmer að hann fari sömu leið og Frakkar Samninganefndir ræða fund leiðtoganna Karlmaður á fertugsaldri handtekinn fyrir sprengjuhótunina Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Hjálparstarf og fréttaflutningur í uppnámi vegna hungursneyðar Alls 81 barn látist úr hungri Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Columbia greiðir tvö hundruð milljóna dala sáttagreiðslu Selenskí dregur í land Danskri sjónvarpsstöð barst sprengjuhótun Heitir bótum en stendur við lögin umdeildu Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Epstein mætti í brúðkaup Trumps Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Sjá meira