Hnignun frábærleikans Dr. Gunni skrifar 1. nóvember 2007 00:01 Gengi íslenska landsliðsins í fótbolta er svartur blettur á andlegri sigurgöngu Íslands. Allir þessir tapleikir - og þá sérstaklega afhroðið gegn Liechtenstein - hafa dregið landsmenn niður, nánast aftur í moldarkofana. Bráðum fer okkur aftur að finnast við bara ekkert sérstök og alls ekkert merkilegri en aðrar þjóðir. Og það má ekki gerast! Það sem við þurfum núna til að ná okkur tilfinningalega er almennilegt plögg í heimspressunni. Svo sem eina jákvæða grein um það hvað útrásarvíkingarnir eru æðislegir, eða bara eitthvað sem snýr þessari óheillaþróun við. Jafnvel myndi duga að Garðar Cortes kæmist inn á Topp 20. Það vill enginn að Ísland verði aftur jafn smátt og sorglega hallærislegt og það var fyrir sirka 30 árum, áður en frábær nútíminn bankaði upp á. Ég meina, á 8. áratugnum vorum við ennþá á steinöld töff og kúl-lega séð. Enginn var almennilega ríkur, nema kannski Þorvaldur í Síld og fisk. Bara einn rúllustigi var á landinu og forsetinn, hinn alþýðlegi Kristján Eldjárn, fór aldrei neitt. Á þessum tíma þótti Skákeinvígið og Surtsey (sem yrði nefnd Blökkumannaey, gysi hún í dag) það merkilegasta við landið, og helsta gersemi þjóðarinnar var uppstoppaður geirfugl (pældu í því!). Frábærleiki þjóðarinnar var miðaður við aðrar Norðurlandaþjóðir, en ekki alheiminn, eins og núna. Stórfenglegasti afreksdagurinn var 5. júní 1975 þegar Ísland marði sigur á Austur-Þýskalandi í fótbolta. Landsmenn ærðust af fögnuði og pabbi taldi þetta svo mikið afrek að hann gaf mér fimmtíukall. Vonandi verður hnignun frábærleikans einangruð við slakt gengi í fótbolta. Vonandi kemur ekki líka í ljós að enginn í útlöndum fílar í raun Sigur Rós og Björk og enginn af þessum útrásarvíkingum á í raun bót fyrir boruna á sér. Það gæti svo gert útslagið ef kæmist upp að þessi svokallaði Bobby Fischer sem kom hingað er í raun ekki skáksnillingurinn heimsfrægi heldur bara einhver klikkhaus. Við megum aldrei verða jafn hallærisleg og við vorum. Aldrei! Við verðum því að halda trúnni, berja okkur á brjóst, ösla áfram, vinna 80 tíma á viku, byggja fleiri stíflur og verslunarmiðstöðvar, og liggja svo útmigin og hamingjusömust í miðbænum um helgar. Við erum best og allur heimurinn horfir með öfund til okkar. Nei, í alvöru! Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Dr. Gunni Mest lesið 76 dagar Erlingur Sigvaldason Skoðun Á hvaða ári er Inga Sæland stödd? Snorri Másson Skoðun Draugagangur í Alaska Hannes Pétursson Skoðun Húsnæðisbæturnar sem hurfu Ragnar Sigurður Kristjánsson Skoðun Háskólaþorpið Bifröst og fólkið sem gleymdist Margrét Jónsdóttir Njarðvík Skoðun Sporin þín Valtýr Soffía Sigurðardóttir Skoðun Hoppað í drullipolli við hliðina á Snorra Mássyni. Um allskonar fólk, líka í Miðflokknum Ægir Lúðvíksson Skoðun Loftslagsverkfræði: Verkefni sem borgar sig ekki að láta bíða Snjólaug Árnadóttir,Páll Gunnarsson Skoðun Ákall til KKÍ og íslensku íþróttahreyfingarinnar Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Oddný Björg Rafnsdóttir,Svanhildur Anja Ástþórsdóttir,Guðjón Magnússon,Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Hunsuðu menntamálin – en ætla nú að bjarga þeim Sigurður Kári Harðarson Skoðun
Hoppað í drullipolli við hliðina á Snorra Mássyni. Um allskonar fólk, líka í Miðflokknum Ægir Lúðvíksson Skoðun
Loftslagsverkfræði: Verkefni sem borgar sig ekki að láta bíða Snjólaug Árnadóttir,Páll Gunnarsson Skoðun
Ákall til KKÍ og íslensku íþróttahreyfingarinnar Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Oddný Björg Rafnsdóttir,Svanhildur Anja Ástþórsdóttir,Guðjón Magnússon,Margrét Rut Eddudóttir Skoðun
Hoppað í drullipolli við hliðina á Snorra Mássyni. Um allskonar fólk, líka í Miðflokknum Ægir Lúðvíksson Skoðun
Loftslagsverkfræði: Verkefni sem borgar sig ekki að láta bíða Snjólaug Árnadóttir,Páll Gunnarsson Skoðun
Ákall til KKÍ og íslensku íþróttahreyfingarinnar Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Oddný Björg Rafnsdóttir,Svanhildur Anja Ástþórsdóttir,Guðjón Magnússon,Margrét Rut Eddudóttir Skoðun