Býður sendiherra á sinn fund 22. september 2006 13:30 Benedikt páfi sextándi. MYND/AP
Páfi ætlar að gera tilraun til að ná sátt við múslima og hefur boðið sendiherra þeirra í heimsókn til sín til að ræða málin. Bendedikt páfi sextándi hefur boðið sendiherra múslimaríkja á fund sinn á mánudaginn í sumarhöll sína á Ítalíu. Auk þess hefur hann boðið trúarleiðtogum múslima á Ítalíu á fundinn. Múslimar eru páfa margir hverjir æfareiðir vegna ummæla hans um Múhameð spámann. Páfi vitnaði í ræðu sinni í Háskólanum í Regensburg í Þýskalandi í síðustu viku til orða kristins keisara Austrómverska ríkisins á fjórtándu öld, þess efnis að Múhameð spámaður hefði aðeins fært heiminum illsku og miskunnarleysi. Ummælin hrundu af stað reiðiöldu í múslimaheiminum og hafa mótmæli farið fram víða. Þess hefur verið krafist að páfi verði sóttur til saka fyrir ummælin og harðlínuklerkur múslima í Sómalíu hvatti trúbræður sína til að elta páfa uppi og myrða hann. Páfi vill með fundinum á mánudaginn reyna að útskýra fyrir múslimum að hann hafi ekki meint neitt mógandi í þeirra garð með ræðu sinni og ummæli hans hefðu í raun verið miskilin. Páfi hefur þrisvar á síðastliðinni viku komið opinberlega fram og sagt að hann harmi þau viðbrögð sem orðið hafa við ræðu hans.
Erlent Fréttir Mest lesið Bátar brenna í Bolungarvík Innlent Erlendur ferðamaður lést við Hrafntinnusker Innlent Meðvitundarlaus maður sóttur í Silfru Innlent Leigubíll án verðmerkingar og veitingastaðir í óleyfi Innlent „Fór algjörlega fram úr björtustu vonum“ Innlent Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Erlent Segir Guðlaug fara með rangt mál: „Hvimleið þessi valkvæða hlustun stjórnarandstöðunnar“ Innlent Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Innlent Merkúr Máni sótti brons í Ólympíukeppninni í líffræði Innlent Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent Fleiri fréttir Ísraelsher stöðvaði aðra skútu með vistum Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Forsætisráðherra segir að átökin gætu færst nær stríði Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ „Tími til kominn að ljúka stríðinu á Gasa“ Lýsa yfir herlögum í Taílandi Ísraelsþing ályktar um innlimun Vesturbakkans Jeremy Corbyn leiðir nýja stjórnmálahreyfingu Þrýstingur eykst á Starmer að hann fari sömu leið og Frakkar Samninganefndir ræða fund leiðtoganna Karlmaður á fertugsaldri handtekinn fyrir sprengjuhótunina Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Hjálparstarf og fréttaflutningur í uppnámi vegna hungursneyðar Alls 81 barn látist úr hungri Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Columbia greiðir tvö hundruð milljóna dala sáttagreiðslu Selenskí dregur í land Danskri sjónvarpsstöð barst sprengjuhótun Heitir bótum en stendur við lögin umdeildu Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Epstein mætti í brúðkaup Trumps Sjá meira