Höll ævintýranna 4. nóvember 2006 15:30 Bjarni Ingvarsson er höfundur og leikari í nýjustu sýningu Möguleikhússins.
Möguleikhúsið frumsýnir splunkunýtt barnaleikrit á morgun. Verkið Höll ævintýranna eftir Bjarna Ingvarsson fjallar um líflegan sagnaþul sem hefur fjölda sagna og ævintýra í farteski sínu sem hann færir í leikrænan búning á einfaldan hátt. Geiturnar þrjár trítla yfir brúna þar sem risinn ógurlegi liggur í leyni, undurfögur höll býr yfir ótal ævintýrum og haltur hani svífur um loftin blá á vængjum ímyndunaraflsins. Sýningin er miðuð við áhorfendur á aldrinum tveggja til átta ára en vitaskuld geta áhorfendur á öllum aldri skemmt sér yfir ævintýrum en áhorfendur fá að taka virkan þátt í atburðarásinni. Leikari sýningarinnar er Bjarni Ingvarsson og leikstjóri Sigurður Sigurjónsson, tónlist er eftir Jónas Þóri og Katrín Þorvaldsdóttir hannaði leikmynd, búninga og leikgervi. Leikritið verður frumsýnt í Möguleikhúsinu við Hlemm kl. 14 á morgun.
Menning Mest lesið Það allra heitasta í sumarförðuninni Tíska og hönnun Aron segist hættur í ClubDub Lífið Messan sem var ekki tímamótaverk – en mig langaði samt til að gráta Gagnrýni Tíu af fyndnustu dýralífsmyndunum Lífið „Hann var ekkert eðlilega góður í sleik“ Makamál Orsakir flösu og áhrifarík meðferð Lífið samstarf Hvar eru þau nú? Lífið Aron Kristinn og Lára keyptu nýstárlega miðbæjarperlu Lífið Fjórum íslenskum útgáfum fagnað í tónlistarveislu í Iðnó Lífið Dregur til baka hluta ásakana á hendur Baldoni Lífið Fleiri fréttir Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Staupasteinsstjarna er látin Gurra og Georg hafa eignast litla systur Joe Don Baker látinn Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Óskarsverðlaunaleikstjórinn Robert Benton látinn Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Sjá meira