Erfingi milljarða og tugir milljóna í stórútgerðinni: „Lífið er miklu meira en peningar“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 20. júlí 2025 19:06 Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur vakið athygli fyrir málgleði sína í málþófi stjórnarandstöðunnar. Vísir/Anton Brink Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur vakið mikla athygli, annað hvort fyrir vasklegan framgang í þágu hagsmuna almennings eða þá hagsmuna kvótakónga og stórútgerðarinnar. Það fer eftir því hvernig litið er á það en hann kemur úr mjög auðugri fjölskyldu og á næstum helmingshlut í félagi sem á hátt í hundrað milljón króna hluti í sjávarútvegsfyrirtækjum.
Það var DV sem fjallaði fyrst um umsvif Jóns Péturs Zimsens á hlutabréfamarkaði í dag. Þar segir, sem rétt er, að umsvif hans á samfélagsmiðlum hefur ekki vakið minni athygli. Færslur hans um biturð og ráðríki hinna fátæku í garð þeirra „sem eru vel stæðir“ hafa vakið gagnrýni enda er hann erfingi umtalsverðra fjármuna. Af gríðarlega auðugum ættum Eins og nafnið gefur til kynna er Jón Pétur af Zimsenættinni sem eru afkomendur Christians Zimsen sem stofnaði Laugarnesapótek og sat í stjórn lyfjafyrirtækisins Pharmaco hf. sem síðar varð Actavis. Zimsensystkynin, Kristinn, Nils, Else og Jón, eiga áttu samanlagða rúma sjö milljarða króna samkvæmt umfjöllun Viðskiptablaðsins frá árinu 2013. Hann lítur þó sjálfur á það sem svo að þeir sem minna eiga á milli handanna séu líklega bitrir. „Einhver hefur komið illa fram við þà og þeir eru í vandræðum með sjálfsmynd sína. Þeim finnst þeir ekki metnir að verðleikum og að heimurinn sé ÓSANNGJARN. Að allt sé einhverjum ÖÐRUM að kenna og því nærtækt að kenna þeim um sem hafa það betur,“ skrifaði hann í færslu sem hann birti á samfélagsmiðlum á fimmtudaginn síðasta. Hátt í hundrað milljónir í stórútgerð Þegar Jón Pétur sór drengskaparheitin þurfti hann sem aðrir að skrá umsvif sín í viðskiptalífinu í hagsmunaskrá. Samkvæmt því er þar kemur fram á hann 41,1 prósent hlut í Jöká ehf., 55 prósent hlut í Alnitak ehf. og 15 prósent hlut í RZ ehf. Af opinberlega aðgengilegum ársreikningum er Jöká það umsvifamesta en þar er Jón Pétur stærsti eigandi. Meðeigendur hans eru Nils, Óli Björn og Jóhann Tómas Zimsen og er félagið skráð með heimilisfesti heima hjá Jóni Pétri. Sjá einnig: Kennarar ættu að koma sér úr hlutverki fórnarlamba Eigið fé Jöká ehf. var samkvæmt síðasta ársreikningi, frá rekstarárinu 2023, samtals 830.448.441 krónur. Hagnaður nam rúmum 217 milljónum króna. Hlutabréf í eigu félagsins nema rúmum hálfum milljarði króna og þar á meðal eru hlutir í Brim, Marel, Hampiðjunni og Iceland Seafood International sem voru árið 2023 virði tæplega 90 milljóna króna. Miðað við hlut félagsins í Kerecis sem hefur síðan verið selt fyrir á annað hundrað milljarða má gera ráð fyrir því að eignasafn Zimsenanna sé talsverðs meira virði í dag. Auk eignarhluts félagsins í fyrirtækjum í sjávarútvegi fjárfesti Jöká einnig í skuldabréfum árið 2023. Þeirra á meðal voru skuldabréf útgefin af Útgerðarfélagi Reykjavíkur, stærsta eiganda Brims upp á 20 milljónir og 80 milljón króna víxil frá Iceland Seafood. Ástríða fyrir árangri unglinga - ekki peningum Þegar fréttastofa bar ofangreint undir Jón Pétur sagði fréttaflutning um umfangsmikil umsvif sín í sjávarútvegi ekki til þess fallinn að draga úr trúverðugleika sínum, eða hitt þó heldur. „Því betur sem íslenskum fyrirtækjum gengur því betra fyrir alla sem eiga í þeim og allt samfélagið þar sem skattspor eykst við góðan árangur. Bæði hefur fólk fjárfest beint í þeim og svo eiga lífeyrissjóðir töluvert í þeim eins og öllum fyrirtækjum á markaði,“ segir hann í samtali við fréttastofu. Jón Pétur Zimsen hefur á stuttum tíma sínum á Alþingi fjallað mikið um áfasta plasttappa og meinta aðför ríkisstjórnarinnar að sjávarútveginum.Vísir/Vilhelm Hann segist hafa tekið þátt í atvinnulífinu í langan tíma og segir flesta eiga að gera það sem hafa til þess fjárráð og þola áhættuna. Jón Pétur segir það raunar koma sér vel að stjórnmálamenn eigi eignarhluta í ofangreindum félögum „þegar stjórnmálamenn reyna að skaða fyrirtæki í almannaeigu.“ Þar á hann væntanlega við veiðigjaldafrumvarp atvinnuvegaráðherra, lengstu þingumræðu frá sameiningu málstofanna þar sem hann var á meðal ræðukónga. Hann klykkir út með að segja að þrátt fyrir umsvif sín sé atvinnulífið alltaf í öðru sæti hjá sér. „Ástríðan hefur verið að vinna með unglingum, að þeir nái árangri í lífinu. Ótal vinir mínir hafa ekkert skilið í því að ég hafi helgað mig kennslu í tæp þrjátíu ár þegar ég hafi haft ótal möguleika á að fara annað. Lífið er nefnilega miklu meira en peningar. Það er nefnilega miklu betra að geta hjálpað öðrum að breiða út vængina,“ segir Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og erfingi umtalsverðra fjármuna. Tengd skjöl ÁrsreikningurÁRSREIKNINGUR2023Sækja skjal
Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Sjávarútvegur Fjármálamarkaðir Mest lesið Gleði Verzlinga fór úr böndunum og þeim ekki boðið aftur Innlent Erfingi sem á tugi milljóna í stórútgerðinni: „Lífið er miklu meira en peningar“ Innlent Skilin eftir vegna yfirbókaðs flugs: „Þú setur ekki sautján ára ungling á standby“ Innlent Hrósar Verzlingum fyrir „vel skipulagða“ útilegu Innlent Móðan gæti orðið langvinn Innlent Öryggisvörður stunginn í brjóstið í Hlíðunum Innlent Framúrskarandi Íslendingur loksins orðinn Íslendingur Innlent Grunaður um að nauðga konu sem svaf í gestaherbergi Innlent Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Innlent Sungu svo falskt að lögreglan var kölluð til Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Kviknaði í haug af timburkurli „Þetta er ekki eiturgas“ Glæsilegt útilistaverk hjá Hrafnistu við Sléttuveg í Fossvogi Erfingi sem á tugi milljóna í stórútgerðinni: „Lífið er miklu meira en peningar“ Ketamínneysla, Akureyrarborg og bananalistaverk borðað Drúsar mótmæla við sendiráðið Öryggisvörður stunginn í brjóstið í Hlíðunum Fjórir kettir týndust í brunanum Framúrskarandi Íslendingur loksins orðinn Íslendingur Einn í gæsluvarðhald vegna hnífstunguárásar Hrósar Verzlingum fyrir „vel skipulagða“ útilegu Grunaður um að nauðga konu sem svaf í gestaherbergi Skilin eftir vegna yfirbókaðs flugs: „Þú setur ekki sautján ára ungling á standby“ Vísar gagnrýni stjórnarandstöðunnar á bug Körfubolta og frjálsíþróttalöggur á Norðurlandi vestra Gleði Verzlinga fór úr böndunum og þeim ekki boðið aftur Einn fluttur á slysadeild eftir að eldur kviknaði við Tryggvagötu Tekist á um brostin loforð ríkisstjórnarinnar Sungu svo falskt að lögreglan var kölluð til Móðan gæti orðið langvinn Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Framdi vopnað rán og leikur lausum hala í Reykjavík Gosmóðan liggur þétt yfir höfuðborgarsvæðinu og viðkvæmir hvattir til að vara sig 135 þúsund kjúklingar á Ásmundarstöðum í Ásahreppi „Langstærstu vandamálin eru þessir stærri og skipulögðu þjófnaðir“ „Umsókn Íslands að Evrópusambandinu hefur aldrei verið formlega dregin til baka“ Hornfirskur miði vann rúmar níu milljónir „Nýta þetta kjörtímabil til að troða Íslandi inn í ESB með sem mestum blekkingum“ Leikrit ríkisstjórnarinnar og hnífamaður flúði í strætó Sjá meira